Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Tíma­bundin laus staða stunda­kennara í stærð­fræði

Bíldu­dals­skóli auglýsir tíma­bundna lausa stöðu stunda­kennara í stærð­fræði. Bíldu­dals­skóli er samrekinn leik- og grunn­skóli. Í grunn­skól­anum eru 23 nemendur og í leik­skól­anum eru 12 en fer fjölg­andi.


Skrifað: 22. desember 2020

Starfsauglýsingar

Í Bíldudalsskóla er Uppbyggingarstefnan höfð að leiðarljósi og einkunnarorð skólans eru samskipti, samvinna og sköpun. Fjölbreyttir kennsluhættir, einstaklingsmiðað nám, samþætting námsgreina þar sem grunnþættir menntunar endurspeglast í skólastarfi.

Í Bíldudalsskóla eru laus til umsóknar eftirfarandi staða út skólaárið (vorönn):

Staða stundakennara (23% starfshlutfall). Stærðfræðikennsla á mið- og unglingastigi 4 x 60 mínútur á viku.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla
  • Metnaður til að vinna eftir fjölbreyttum og árangursríkum kennsluaðferðum
  • Metnaður til að starfa í teymi
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum
  • Reglusemi og samviskusem
  • Hreint sakarvottorð

Umsóknarfrestur er til og með 3. janúar 2021

Viðkomandi þarf að geta hafið störf frá og með 18. janúar. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara.

Allar nánari upplýsingar gefur Signý Sverrisdóttir skólastjóri í síma 450 2333 eða 849 8976. Senda skal umsókn á netfangið signy@vesturbyggd.is og verður móttaka umsókna staðfest.