Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 3 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.
Tjaldsvæðið á Patreksfirði fullbókað um verslunarmannahelgina!
Tilkynning vegna tjaldsvæðisins á Patreksfirði um verslunarmannahelgina:
Þann 31. júlí – 3. ágúst n.k. verður Skjaldborg – hátíð íslenskra heimildamynda haldin á Patreksfirði, en hún hefur verið haldin ár hvert frá árinu 2007. Búast má við fjölda fólks í bænum vegna þess og eru allar gistingar á svæðinu fullbókaðar.
Tjaldsvæðagestum sem höfðu áætlanir um að ferðast um svæðið og tjalda á Patreksfirði er bent á önnur tjaldsvæði í nágrenninu, eins og Bíldudal, á Tálknafirði, Melanes á Rauðasandi, við Hótel Flókalund og við Hótel Breiðavík.
Skrifað: 24. júlí 2020