Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 5 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Umferðarör­yggi á Bíldudal

Á 50. fundi Skipu­lags– og umhverf­is­ráðs Vest­ur­byggðar var lögð fram til kynn­ingar skýrsla VSÓ Ráðgjafar um umferðarör­yggi á Bíldudal – aðgerðir til hrað­a­lækk­unar. Í skýrsl­unni er farið yfir forsendur, grein­ingu á núver­andi ástandi, almennt um aðgerðir og tillögur til hrað­a­lækk­andi aðgerða. Einnig er stutt saman­tekt um gerð hugs­an­legs strand­vegs framhjá þétt­býlinu við strand­línuna.


Skrifað: 6. september 2018

Auglýsingar, Skipulög í auglýsingu

Í skýrslunni er m.a. eftirfarandi lagt til:

1. Sett verði upp svokallað þéttbýlishlið við suðurenda Dalbrautar, með miðeyju.
2. Hámarkshraði lækkaður í 30 km/klst frá Dalbraut 8 framhjá leikvelli við leikskóla. Norðan við leikskóla verði hámarkshraði 40 km/klst, sem og sunnan við Dalbraut 8 en á þeim kafla verði einnig fleiri hraðatakmarkandi aðgerðir.
3. Hraðavaraskilti verði fært u.þ.b. 250 m innan í þéttbýlið.
4. Upplýsingaskilti við gangbrautir.
5. 30 km skilti og 30 km yfirborðsmerking við upphaf 30 svæðis.
6. Tvær miðeyjur verði settar upp á Dalbraut, neðan Dalbrautar 30 og 46.

Skipulags– og umhverfisráð tók vel í hugmyndirnar en lagði til að tillagan yrði auglýst og óskað eftir athugasemdum við tillöguna.

Tillagan mun einnig verða kynnt á opnu húsi á Bíldudal sem verður auglýst síðar.

Athugasemdir og ábendingar skal senda til þjónustufulltrúa, sjá að neðan. Opið er fyrir athugasemdir og ábendingar til og með 1. nóvember.

Að loknum athugasemdafresti mun skipulags- og umhverfisráð fjalla um þær ábendingar og athugasemdir  sem berast og í framhaldi gera tillögu að aðgerðaráætlun til bæjarstjórnar í samvinnu við VSÓ ráðgjöf.