Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Umsjón­ar­kennari á yngsta stigi - Patreks­skóli

Í Patreks­skóla eru um 100 nemendur frá 5 ára – 10. bekk. Patreks­skóli vinnur með Uppbygg­ing­ar­stefnuna að leið­ar­ljósi og einkunn­arorð skólans eru jákvæðni, virðing og samvinna. Áherslur skólans eru fjöl­breyttir kennslu­hættir, einstak­lings­miðað nám, samþætting náms­greina þar sem grunn­þættir mennt­unar endur­speglast í skóla­starfi. Lögð er áhersla á teymis­kennslu.


Skrifað: 4. desember 2023

Starfsauglýsingar

Starfssvið

  • 100% starf kennara með sérhæfða hæfni í kennslu á yngsta stigi.
  • Taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu og mótum á skólastarfi
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans
  • Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar og hæfniskröfur

  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari
  • Sérhæfð hæfni á yngsta stigi grunnskóla
  • Lipurð í samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
  • Faglegur metnaður
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Áhugi á að starfa með börnum í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Reynsla af teymisvinnu kostur

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.

Umsókn um starf skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi ef við á og upplýsingar um umsagnaraðila.

Umsóknir skulu berast á netfangið asdissnot@vesturbyggd.is Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.