Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Umsjón­ar­kennari á yngsta stigi

Í Patreks­skóla vantar umsjón­ar­kennara á yngsta stigi en í skól­anum eru alls um 100 nemendur frá 5 ára – 10. bekk. Patreks­skóli vinnur með Uppbygg­ing­ar­stefnuna að leið­ar­ljósi og einkunn­arorð skólans eru jákvæðni, virðing og samvinna.


Skrifað: 4. ágúst 2021

Starfsauglýsingar

Áherslur skólans eru fjölbreyttir kennsluhættir, einstaklingsmiðað nám, samþætting námsgreina þar sem grunnþættir menntunar endurspeglast í skólastarfi. Lögð er áhersla á teymisvinnu, leiðsagnarnám og hugarfar vaxtar.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari
  • Sérhæfð hæfni á yngsta stigi grunnskóla
  • Lipurð í samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
  • Faglegur metnaður
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Áhugi á að starfa með börnum í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Reynsla af teymisvinnu kostur

Umsóknarfrestur er til og með 13. ágúst 2021

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélags. Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.

Frekari upplýsingar gefur Ásdís Snót Guðmundsdóttir skólastjóri á netfangi asdissnot@vesturbyggd.is eða í síma 450 2321