Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.
Umsjónarmaður í félagsmiðstöðina Vest-End
Vesturbyggð auglýsir eftir umsjónarmanni í félagsmiðstöðina Vest-End á Patreksfirði. Um er að ræða alla umsjón með félagsmiðstöðinni veturinn 2022 – 2023 hið minnsta.
Umsjón með starfi í Vest-End felst í skipulagningu á innra starfinu sem og þrifum og þess háttar.
Félagsmiðstöðin er opin tvö kvöld í viku í tvo tíma í senn og er starfið ætlað fyrir unglinga úr 8.-10. bekk en fær 5.-7. bekkur að mæta á viðburði sem eru sérstaklega auglýstir.
Félagsmiðstöðvar á sunnanverðum Vestfjörðum starfa náið saman og eru sameiginlegir viðburðir haldnir einu sinni í mánuði.
- Kaup og kjör fara eftir kjarasamningum Félags opinberra starfsmanna á Vestfjörðum
- Viðkomandi þarf að hafa náð 20 ára aldri
- Fyrra starf og/eða nám sem nýtist í starfi er kostur
- Sjálfstæð vinnubrögð, stundvísi og jákvætt viðmót skilyrði
Umsóknarfrestur er til og með 29. ágúst 2022
Umsóknir berist til Íþrótta og tómstundafulltrúa sem veitir nánari upplýsingar á netfangi it@vesturbyggd.is eða í síma 450 2300.