Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Umsjón­ar­maður í félags­mið­stöðina Vest-End

Vest­ur­byggð auglýsir eftir umsjón­ar­manni í félags­mið­stöðina Vest-End á Patreks­firði. Um er að ræða alla umsjón með félags­mið­stöð­inni veturinn 2022 – 2023 hið minnsta.


Skrifað: 19. ágúst 2022

Starfsauglýsingar

Umsjón með starfi í Vest-End felst í skipulagningu á innra starfinu sem og þrifum og þess háttar.

Félagsmiðstöðin er opin tvö kvöld í viku í tvo tíma í senn og er starfið ætlað fyrir unglinga úr 8.-10. bekk en fær 5.-7. bekkur að mæta á viðburði sem eru sérstaklega auglýstir.

Félagsmiðstöðvar á sunnanverðum Vestfjörðum starfa náið saman og eru sameiginlegir viðburðir haldnir einu sinni í mánuði.

  • Kaup og kjör fara eftir kjarasamningum Félags opinberra starfsmanna á Vestfjörðum
  • Viðkomandi þarf að hafa náð 20 ára aldri
  • Fyrra starf og/eða nám sem nýtist í starfi er kostur
  • Sjálfstæð vinnubrögð, stundvísi og jákvætt viðmót skilyrði

Umsóknarfrestur er til og með 29. ágúst 2022

Umsóknir berist til Íþrótta og tómstundafulltrúa sem veitir nánari upplýsingar á netfangi it@vesturbyggd.is eða í síma 450 2300.