Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 5 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Umsókn­ar­frestur fyrir ýmsa sjóði

Þessa dagana er hægt að sækja um styrki hjá ýmsum aðilum vegna uppbygg­ingar, rann­sóknar- og þróun­ar­verk­efna, og margt fleira.

 


Skrifað: 25. október 2018

Auglýsingar

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða

Hlutverk Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða er að veita styrki til uppbyggingar, viðhalds og vernd­unar ferðamannastaða sem eru í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila um land allt og til aðgerða sem stuðla að öryggi ferðamanna og verndun náttúru landsins. Einnig er sjóðnum ætlað að fjölga viðkomustöðum ferðafólks til að draga úr álagi á fjölsótta ferðamannastaði.

Umsóknarfrestur er til kl. 13:00 mánudaginn 29. október 2018.

Uppbyggingarsjóður Vestfjarða

Hlutverk sjóðsins er að styðja atvinnusköpun og menningu á Vestfjörðum í samræmi við sóknaráætlun Vestfjarða. Einkum verður horft til samvinnu yfir hreppamörk og verkefni sem laða að ungt fólk.

Umsóknarfrestur er til 10. nóvember 2018.

AVS rannsóknasjóður

AVS rannsóknasjóður veitir styrki til rannsókna- og þróunarverkefna, sem auka verðmæti sjávarfangs. Skammstöfunin AVS er einmitt til kominn af orðunum „Aukið Verðmæti Sjávarfangs“ Styrkir eru veittir til verkefna sem taka á öllum þáttum sjávarútvegs og fiskeldis.

Styrkir AVS rannsóknasjóðs eru til hagnýtra rannsókna og ætlaðir einstaklingum, fyrirtækjum, rannsókna-, þróunar- og háskólastofnunum. 

Umsóknarfrestur er til 1. desember 2018.