Uppbyggingarsjóður Vestfjarða
Uppbyggingarsjóður Vestfjarða styrkir nýsköpun, uppbyggingu atvinnulífs og menningarstarf á Vestfjörðum. Hann er hluti af Sóknaráætlun Vestfjarða. Nú er opið fyrir umsóknir vegna verkefna sem eiga að koma til framkvæmda árið 2021. Umsóknarfrestur er til 12. nóvember kl. 16:00.
Skrifað: 28. október 2020
Fagráð og úthlutunarnefnd Uppbyggingarsjóðs eru kosin er á Fjórðungsþingi Vestfirðinga. Þau annast val verkefna að undangengnu umsóknarferli. Fagráð menningar og nýsköpunar velja hvaða verkefni skulu hljóta styrk en úthlutunarnefnd ákvarðar styrkupphæðir. Áherslur úthlutana eru auglýstar árlega og byggja á gildandi Sóknaráætlun Vestfjarða. Árlega er úthlutað um 50 milljónum króna úr Uppbyggingarsjóði Vestfjarða.
Hér er hægt að sækja um á vef sóknaráætlunar. Þar er hægt að sækja um þegar umsóknarglugginn er opinn, breyta umsóknum, prenta út samninga og fleira.
Hér má sækja bækling sem var dreift í öll hús og fyrirtæki á Vestfjörðum með upplýsingum um Uppbyggingarsjóð.