Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir u.þ.b. 3 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Upplýs­inga­fundur um ferjuna Baldur

Í kjölfar véla­bil­unar 11. mars hafa komið upp efasemdir um öryggi ferj­unnar meðal íbúa á vest­fjörðum.


Skrifað: 23. mars 2021

Auglýsingar, Fréttir

Af því tilefni vilja Sæferðir og Vegagerðin, í samstarfi við Vesturbyggð og Tálknafjörð, boða til íbúafundar á morgun, miðvikudaginn 24. mars kl. 16 þar sem Gunnlaugur Grettisson framkvæmdastjóri Sæferða, Halldór Jörgensson forstöðumaður almenningssamgangna hjá Vegagerðinni og Hjörtur Emilsson skipaverkfræðingur sitja fyrir svörum um þetta mál.

Hérna má finna tengil á Teams fund

Fundurinn verður tekinn upp og aðgengilegur fyrir þá sem ekki sjá sér fært að mæta á auglýstum fundartíma.