Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 2 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Upplýs­inga­stefna Vest­ur­byggðar

Bæjar­stjórn Vest­ur­byggðar stað­festi upplýs­inga­stefnu Vest­ur­byggðar á 363. fundi sínum í gær, 15. sept­ember.


Skrifað: 16. september 2021

Fréttir

Undirbúningur og vinna við stefnuna hefur staðið yfir um nokkurt skeið og hafa bæði starfsmenn Vesturbyggðar og fastanefndir sveitarfélagsins komið að vinnslu stefnunnar.

Markmið upplýsingastefnu Vesturbyggðar er að tryggja frekara gagnsæi í stjórnsýslu sveitarfélagsins, þannig að allir sem hagsmuna eiga að gæta hafi greiðan aðgang að upplýsingum um starfsemi Vesturbyggðar. Markviss miðlun upplýsinga og skýr viðmið um svörun erinda auðvelda aðhald að stjórnsýslunni, efla skilvirkt samstarf starfsmanna, bæta flutning frétta af starfsemi sveitarfélagsins og gera íbúum kleift að vera virkir þátttakendur í íbúalýðræði.

Upplýsingastefnan nær til allrar starfsemi sveitarfélagsins og tengir því saman ýmsa aðra stefnumótun er varðar upplýsingamiðlun og samskipti við íbúa og fjölmiðla.

Uppfært 14. nóvember 2023: Endurskoðuð upplýsingastefna var samþykkt á 972. fundi bæjarráðs. Hún gildir frá 2023 til 2025 og hana má sjá hér fyrir neðan.