Hoppa yfir valmynd

Útboð - Gatna­gerð og lagnir á Brunnum

Vest­ur­byggð óskar eftir tilboðum í endur­nýjun götu og lagna við Brunna á Patreks­firði.


Skrifað: 18. mars 2024

Auglýsingar

Helstu stærðir:

  • Upprif á malbiki 2975m²
  • Útgröftur 2646m³
  • Flutningur efnis á losunarstað 2646³
  • Styrktarlag 1488m³
  • Burðarlag 595m³
  • Skurðir fráveitu 1073m³
  • Söndun 670m³

Verkið skal vinna samkvæmt útboðs- og verklýsingu „Brunnar – Gatnagerð og lagnir“ sem hægt er að fá afhenta á skrifstofu Vesturbyggðar Aðalstræti 75 450 Patreksfirði, eða fá send með tölvupósti til þeirra sem þess óska.

Útboðsgögn verða afhend bjóðendum á rafrænu formi. Senda skal tölvupóst á geir@vesturbyggd.is til að óska eftir að fá útboðsgögn.

Helstu dagsetningar:

  • Auglýsingadagur útboðs er 18.mars 2024. Engin kynning verður á útboði.
  • Fyrirspurnartíma vegna útboðs lýkur 25.mars 2024.
  • Svarfrestur rennur út 4.apríl 2024.
  • Opnunartími tilboða verður 10.apríl 2024 kl. 11:00 á skrifstofu Vesturbyggðar.

Vesturbyggð áskilur sér rétt til að kalla eftir upplýsingum sem varða verkefnið. Lögð er rík áhersla á að bjóðendur skili inn umbeðnum gögnum með tilboðum sínum. Geri þeir það ekki getur tilboði þeirra verið vísað frá.

Farið verður með allar upplýsingar frá bjóðendum sem trúnaðarmál.

Sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs

Geir Gestsson geir@vesturbyggd.is / 450 2300