Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 2 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Vegna fjölg­unar smita

Næstu daga hvetjum við íbúa til að fara sérstak­lega varlega og draga úr öllu samneyti nema brýna nauðsyn beri til. Þeir aðilar sem hyggjast standa fyrir viðburðum eru hvattir til að fresta þeim í að minnsta kosti um viku. Ef minnstu einkenna verður vart, eru íbúar hvattir til að skrá sig í sýna­töku og ekki mæta til vinnu eða í skóla og fara varlega, þar sem veiran er sérstak­lega smit­andi.


Skrifað: 9. janúar 2022

Fréttir

Síðustu daga hafa 19 einstaklingar greinst með covid-19 á Patreksfirði, þar af greindust 8 smit í dag, en flest þeirra voru innan sóttkví. Vettvangsstjórn almannavarna á sunnanverðum Vestfjörðum hefur fundað yfir helgina vegna fjölgunar smita, en smitin teygja sig inn í leik- og grunnskóla á Patreksfirði. Þrátt fyrir það, þá mun skólastarf á Patreksfirði verða með nokkuð eðlilegum hætti, en nokkur fjöldi nemenda og starfsmanna er í sóttkví eða einangrun.

Næstu daga hvetjum við íbúa til að fara sérstaklega varlega og draga úr öllu samneyti nema brýna nauðsyn beri til. Þeir aðilar sem hyggjast standa fyrir viðburðum eru hvattir til að fresta þeim í að minnsta kosti um viku. Ef minnstu einkenna verður vart, eru íbúar hvattir til að skrá sig í sýnatöku og ekki mæta til vinnu eða í skóla og fara varlega, þar sem veiran er sérstaklega smitandi.

Fylgst verður áfram vel með þróun smita næstu daga og brugðist skjótt við í starfsemi sveitarfélagsins ef þörf krefur.

Gætum að sóttvörnum, mætum í sýnatöku ef einkenna verður vart og saman komumst við í gegnum þetta.