Hoppa yfir valmynd

Véla­maður á Patreks­firði

Vega­gerðin auglýsir laust starf véla­manns á þjón­ustu­stöð­inni á Patreks­firði. Véla­menn vinna á opnun­ar­tíma þjón­ustu­stöðvar en eru þar að auki á bakvöktum utan dagvinnu­tíma frá október-apríl alla daga vikunnar, til að sinna vetr­ar­þjón­ustu.


Skrifað: 15. nóvember 2024

Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru.  Áhugasamir einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.

Helstu verkefni og ábyrgð

Vélamenn sinna almennri daglegri þjónustu á vegakerfinu á starfssvæði þjónustustöðvarinnar á Patreksfirði. Meðal verka er viðhald á vegstikum, umferðamerkjum og öðrum vegbúnaði ásamt annarri vinnu í starfsstöð.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Almenn ökuréttindi skilyrði
  • Vinnuvélaréttindi æskilegt
  • Meirapróf æskilegt
  • Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
  • Góð öryggisvitund
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í hóp
  • Gott vald á íslensku
  • Almenn tölvukunnátta

Umsóknarfrestur er til og með 26. nóvember 2024

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Verkalýðsfélag Vestfirðinga hafa gert.

Í umsókn þarf að koma fram upplýsingar um fyrri störf og upplýsingar um þær hæfnikröfur sem óskað er eftir. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Starfshlutfall er 100%

Nánari upplýsingar veitir Bríet Arnardóttir, yfirverkstjóri – briet.arnardottir@vegagerdin.is – 522 1000