Verkefnastjóri ræstinga
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða leitar að jákvæðum og sjálfstæðum einstakling til starfa við ræstingar á heilsugæslunni á Patreksfirði.
Um er að ræða dagvinnu og er starfshlutfall 60 – 80% eða eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Verkefnastjóri ræstinga stýrir starfsemi í ræstingum og ber ábyrgð á framkvæmd og skipulagi í samráði við rekstrarstjóra. Verkefnastjóri hefur einnig yfirumsjón með sótthreinsun.
Hæfniskröfur
- Áreiðanleiki, samviskusemi og sjálfstæði í starfi
- Reglusemi og stundvísi
- Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Íslensku og/eða enskukunnátta.
- Góð almenn tölvufærni
- Gild ökuréttindi
- Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
Umsóknarfrestur er til og með 27. febrúar 2023
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá. Æskilegt væri að viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst.
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 250 manns starfa á fjórum megin starfsstöðvum. Þar af eru rúmlega 40 starfsmenn á Patreksfirði á heilsugæslu, legudeild, endurhæfingu og rekstrardeild. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í allt að 6 mánuði.
Starfshlutfall er 60-80%
Nánari upplýsingar veitir
Hermann Grétar Jónsson, Rekstrarstjóri – hermann@hvest.is – 782 0880
Gerður Rán Freysdóttir, Hjúkrunarstjóri – gerdur@hvest.is – 450 2000