Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Verk­efna­stjóri samfé­lags­upp­bygg­ingar

Vest­ur­byggð auglýsir eftir metn­að­ar­fullum og verk­efna­drifnum einstak­lingi í starf verk­efna­stjóra samfé­lags­upp­bygg­ingar. Starfið er fjöl­breytt og felur í sér verk­efni þvert á öll svið sveit­ar­fé­lagsins og náið samstarf með stjórn­endum þess.


Skrifað: 9. júní 2023

Starfsauglýsingar

Meginviðfangsefni starfsins er að verkefnastýra tilteknum framkvæmdaverkefnum á vegum sveitarfélagsins, verkefni er varða innviðauppbyggingu og atvinnuþróun og vinna að stefnumótun sveitarfélagsins í samráði við starfsfólk og bæjarfulltrúa, ásamt innleiðingu og framkvæmd. Verkefnastjóri vinnur með stjórnendum að framkvæmd ákvarðana bæjarstjórnar. Um er að ræða spennandi framtíðarstarf í skemmtilegu og lifandi starfsumhverfi.

Leitað er eftir einstaklingi sem hefur reynslu af stjórnun verkefna, hefur tileinkað sér sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð og býr yfir ríkum og góðum samskiptahæfileikum og þjónustulund.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Verkefnastjórn uppbyggingarverkefna
  • Stefnumörkun sveitarfélagsins í samráði við bæjarstjóra, bæjarstjórn og starfsfólk sveitarfélagsins
  • Vinna með sveitarfélaginu og hagaðilum að nýsköpun og eflingu atvinnulífs
  • Samskipti við ýmsa hagaðila þar á meðal atvinnurekendur, íbúa og stjórnvöld
  • Vinna við gerð styrkumsókna

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af verkefnastjórnun æskileg
  • Reynsla af opinberri stjórnsýslu kostur
  • Þjónustulund, forystu- og samskiptahæfileikar
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum, frumkvæði og skipulagshæfileikar
  • Áhugi á þátttöku í teymisstarfi og umbótaverkefnum
  • Jákvæðni og aðlögunarhæfni

Vesturbyggð er vaxandi sveitarfélag þar sem jafnrétti, jafnræði og virðing er höfð að leiðarljósi. Starfið getur verið á mismunandi starfstöðvum innan sveitarfélagsins.

Vinnutími:Dagvinna

Starfshlutfall: 100%

Starfssvið: Fjármála- og stjórnsýslusvið

Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum ef við á. Umsókn fylgi einnig kynningarbréf. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga  við viðkomandi stéttarfélag. Við hvetjum áhugasöm um að sækja um óháð kyni og uppruna. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánar samkomulagi. Sveitarfélagið áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Umsóknum skal skilað inn á Alfreð

Nánari upplýsingar veita Þórdís Sif Sigurðardóttir og Gerður B. Sveinsdóttir, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.