Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Verk­efna­stjóri – Vatn­eyr­arbúð Patreks­firði

Minja­safn Egils Ólafs­sonar og sveit­ar­fé­lagið Vest­ur­byggð auglýsa eftir umsóknum um starf verk­efna­stjóra í Vatn­eyr­arbúð. Um er að ræða tíma­bundið starf til 3 mánaða.


Skrifað: 10. september 2021

Starfsauglýsingar

Verkefnastjóri mun sjá um skráningu þeirra muna sem tilheyra Vatneyrarbúð, sem er friðlýst hús í eigu Vesturbyggðar. Þá mun verkefnastjóri að lokinni skráningu vinna tillögur að uppsetningu munanna, vinna upplýsingaskilti og skipuleggja yfirlitssýningu munanna í samræmi við starfsemi nýsköpunar- og þekkingaseturs sem fram fer í húsinu. Þá er gert ráð fyrir að verkefnisstjóri muni halda utan um uppsetningu munanna í húsinu í samráði við Minjasafn Egils Ólafssonar og Vesturbyggð.

 

Meginverkefni

  • Flokka og meta varðveislugildi muna í Vatneyrarbúð og skrá í samræmi við söfnunarstefnu Minjasafns Egils Ólafssonar
  • Vinna tillögur að uppsetningu munanna í Vatneyrarbúð
  • Skipuleggja yfirlitssýninguna í samræmi við starfsemi hússins
  • Vinna upplýsingaskilti fyrir muni hússins
  • Sér um uppsetningu munanna í Vatneyrarbúð að skráningu lokinni

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi skilyrði
  • Áhugi á menningarstarfi og sköpunarkraftur
  • Frumkvæði og sjálfstæði í störfum skilyrði
  • Reynsla af safnastarfi og þekking á skráningu safnamuna æskileg
  • Góð kunnátta í íslensku og ensku skilyrði
  • Góð samskiptahæfni og skipulagshæfni æskileg

Umsóknarfrestur er til og með 20. september 2021

Starfið nýtur stuðnings Safnasjóðs og er ráðningasambandið við Minjasafn Egils Ólafssonar á Hnjóti.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar um starfið veitir safnastjóri Minjasafns Egils Ólafssonar á Hnjóti í síma 694 2703 og netfang museum@hnjotur.is.

Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun, starfsferil og fleira skal senda á netfangið museum@hnjotur.is.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu í starfið.