Verum frábær í febrúar!
Nú þegar undirritaður er sestur niður til að rita eitthvað um mikilvægi hreyfingar í skammdeginu og myrkrinu skjóta upp kollinum fallegar laglínur Nýdanskrar: „Vetur konungur, í myrkrinu skín í hið illa á stundum. Þú ert enginn engill, hann máni er aldrei jafn fullur og þegar hann er með þér.“
Skrifað: 3. febrúar 2021
Verum frábær í febrúar er hvatningarátak sveitarfélaganna og HHF til ykkar íbúa til áminningar um að hlúa að eigin hreysti og heilbrigði, sérstaklega núna þegar myrkrið virðist alls ráðandi. Dreifibréf var sent í hús með það að markmiði að gera þriðju-, fimmtu- og laugardaga að hreystidögum í febrúar. Einnig voru settar fram hugmyndir af því hvað hægt er gera nú fyrri hluta febrúar en ykkur mun berast annað dreifibréf fyrir seinni hluta mánaðarins. Núna í febrúar er líka landsátakið „Lífshlaupið“ í gangi og hvetjum við alla til þátttöku í því.
Því miður er það of algengt að fólk glími við lyndisraskanir á þessum tímum. Hlúum að okkur sjálfum, tökum eftir eigin líðan og leitumst við að gera það sem í okkar valdi stendur til að hafa líðan okkar ávallt sem besta. Hvort sem það er með hreyfingu, næringarríkum mat, hugleiðslu eða jafnvel faglegri aðstoð.