Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 5 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Vest­firðir 2035 – Skoð­ana­könnun

Hvernig telur þú að atvinnu– og mannlíf á Vest­fjörðum þróist til ársins 2035? Taktu þátt í meðfylgj­andi skoð­ana­könnun og segðu þína skoðun.


Skrifað: 29. ágúst 2018

Auglýsingar

Könnunin er hluti af sviðsmyndavinnu fyrir Vestfirði sem unnin er fyrir Vestfjarðastofu. Markmið sviðsmynda er að efla skilning á hugsanlegri framtíðarþróun og helstu óvissuþáttum sem geta breytt umhverfi okkar.

Fyrirsjáanlegar eru breytingar á samgöngum, tækni, fjarskiptum og atvinnulífi sem hafa munu mikil áhrif á þróun byggðar á Vestfjörðum. Sviðsmyndagreining skoðar hvaða drifkraftar í umhverfinu skipta mestu máli, hverjir eru háðir mestri óvissu og hvað gæti hugsanlega gerst ef þessir kraftar þróast í mismunandi áttir.

Sviðsmyndir nýtast til að búa svæðið undir framtíðina, hjálpa við mótun stefnu, skipulags og við markaðssetningu svæðisins, hvort sem er til búsetu eða ferðalaga.

Vinna við gerð sviðsmynda hentar vel til að stilla saman skoðunum ólíkra hópa og leggja grunn að sameiginlegri stefnumótun. Með því að skoða umhverfi dagsins í dag með gleraugum framtíðarinnar eigum við auðveldara með að koma auga á nýja möguleika og fá heildstæðari sýn til ákvarðanatöku.

Könnunin verður opin til mánudagsins 10. september.