Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 1 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Vest­ur­byggð á Manna­mótum

Vest­ur­byggð verður með bás á Manna­mótum mark­aðs­stof­anna í Kórnum í Kópa­vogi þann 19. janúar kl. 12-17.


Skrifað: 10. janúar 2023

Auglýsingar

Þar verða ferðaþjónustuaðilar frá öllum landshlutum að kynna sína starfsemi, þar með talið frá Vesturbyggð og Vestfjörðum öllum. Öll eru velkomin á Mannamót en gestir eru hvattir til að skrá sig á heimasíðu markaðsstofanna. Þar má jafnframt finna nánari upplýsingar um markaðsstofurnar og viðburðinn sjálfan.

Ferðaþjónar í Vesturbyggð sem sá sér ekki fært að vera með kynningu geta haft samband við menningar- og ferðamálafulltrúa Vesturbyggðar sem sér um að koma kynningarefni þeirra til skila.