Vesturbyggð og Tálknafjarðahreppur hljóta tilnefningu til Skörungsins
Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur hlutu tilnefningu til Skörungsins – íslensku ungmennaverðlaunanna árið 2023. Sveitarfélögin fengu viðurkenningu í flokki framtaks í þágu ungs fólks, fyrir að hafa heimilað 16 og 17 ára ungmennum að taka þátt í bindandi íbúakosningum um sameiningu sveitarfélaganna.
Verðlaunin eru veitt einstaklingum, hópum, félögum, stofnunum eða fyrirtækjum fyrir eftirtektarvert framtak í þágu hagsmuna og réttinda ungs fólks á árinu. Verðlaunaafhendingin fór fram með hátíðlegum hætti í Mannréttindahúsinu í Reykjavík í gær 5. desember. Móttöku verðlaunanna veittu Sólrún Elsa Steinarsdóttir og Rakel Sara Sveinsdóttir Berg sem báðar urðu 16 ára á árinu og nýttu kosningarétt sinn í íbúakosningunum.

Verðlaunin eru sannarlega hvatning til að veita ungmennum aukið aðgengi að ákvörðunartöku í nýju sveitarfélagi og þátttöku í stefnumótandi ákvörðunum þess. Við vonumst einnig til þess að þetta verði hvatning til fleiri sveitarfélaga að nýta heimildir kosningalaga til að heimila 16 og 17 ára ungmennum að taka þátt í íbúakosningum.