Hoppa yfir valmynd

Vest­ur­byggð og Tálkna­fjarða­hreppur hljóta tilnefn­ingu til Skör­ungsins

Vest­ur­byggð og Tálkna­fjarð­ar­hreppur hlutu tilnefn­ingu til Skör­ungsins – íslensku ungmenna­verð­laun­anna árið 2023. Sveit­ar­fé­lögin fengu viður­kenn­ingu í flokki fram­taks í þágu ungs fólks, fyrir að hafa heim­ilað 16 og 17 ára ungmennum að taka þátt í bind­andi íbúa­kosn­ingum um samein­ingu sveit­ar­fé­lag­anna.


Skrifað: 6. desember 2023

Auglýsingar

Verðlaunin eru veitt einstaklingum, hópum, félögum, stofnunum eða fyrirtækjum fyrir eftirtektarvert framtak í þágu hagsmuna og réttinda ungs fólks á árinu. Verðlaunaafhendingin fór fram með hátíðlegum hætti í Mannréttindahúsinu í Reykjavík í gær 5. desember. Móttöku verðlaunanna veittu Sólrún Elsa Steinarsdóttir og Rakel Sara Sveinsdóttir Berg sem báðar urðu 16 ára á árinu og nýttu kosningarétt sinn í íbúakosningunum.

 

Sólrún Elsa og Rakel Sara taka á móti viðurkenningu fyrir hönd sveitarfélaganna

Verðlaunin eru sannarlega hvatning til að veita ungmennum aukið aðgengi að ákvörðunartöku í nýju sveitarfélagi og þátttöku í stefnumótandi ákvörðunum þess. Við vonumst einnig til þess að þetta verði hvatning til fleiri sveitarfélaga að nýta heimildir kosningalaga til að heimila 16 og 17 ára ungmennum að taka þátt í íbúakosningum.