Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 4 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Vilja­yf­ir­lýsing bæjar­stjóra og ráðherra

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra og Rebekka Hilm­ars­dóttir, bæjar­stjóri Vest­ur­byggðar, hafa skrifað undir vilja­yf­ir­lýs­ingu um samvinnu við fjölgun nýrra íbúða í sveit­ar­fé­laginu.


Skrifað: 2. október 2019

Fréttir

Verkefnið sem ráðist verður í er að breyta gömlu bæjarskrifstofunum á Patreksfirði í hagkvæmar íbúðir. Gert er ráð fyrir að þannig megi fjölga leiguíbúðum um þrjár til fjórar á svæðinu. Skrifstofur sveitarfélagsins voru fluttar í nýtt húsnæði fyrir ári og hefur gamla húsnæðið frá þeim tíma staðið autt. Samhliða hefur mikill skortur verið á íbúðarhúsnæði í Vesturbyggð og því liggur beint við að skoða hvernig nýta megi gömlu bæjarskrifstofurnar til bæta framboð á íbúðum.

Bætt atvinnuástand hefur aukið eftirspurn eftir leiguhúsnæði í Vesturbyggð. Störfum í sveitarfélaginu hefur fjölgað á síðustu tveimur árum og er það ekki síst vegna vaxandi umsvifa í tengslum við ferðaþjónustu og fiskeldi.

Íbúðalánasjóður mun koma að útfærslu verkefnisins og hefur sjóðurinn ákveðið að leggja sveitarfélaginu til tveggja milljóna króna hönnunarstyrk. Þá mun hann bjóða fram sérfræðiþekkingu starfsmanna sinna sem hluta af tilraunaverkefni sjóðsins til að örva húsnæðisuppbyggingu á landsbyggðinni. Eins er stefnt að því að Íbúðalánasjóður fjármagni verkefnið í gegnum nýjan lánaflokk sjóðsins.