Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir næstum 4 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Viltu ættleiða tré?

Hafin er vinna við ofan­flóða­varnir fyrir ofan Mýra, Hóla og Urðar­götu á Patreks­firði, og hluti af þeirri vinnu felst í að færa lægstu trén í hlíð­inni á önnur svæði til að stuðla að því að þau geti haldið áfram að vaxa í Vest­firsku lofti. Stærð þeirra trjáa sem fyrir­hugað er að flytja er um 2,5-3 metra hæð og lægri.


Skrifað: 29. maí 2020

Auglýsingar

Einn af þeim möguleikum sem unnið er með, er að aðstoða fólk sem hefur áhuga á að koma þessum trjám í fóstur á örugg svæði, eða setja þessi tré í eða við garða til að flýta fyrir skjólmyndun.

Ef einstaklingar eða fyrirtæki hafa áhuga á að fá tré er best að setja sig í samband við Geir Gestsson, sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs. Unnið verður í því að staðsetja tré með rótarkerfi við hreppsgirðinguna sem staðsett er við endann á Mýrum og munu aðilar geta sótt tré þangað.

Sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs

Geir Gestsson geir@vesturbyggd.is / 450 2300