Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 1 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Viltu losa þig við stórt eða þungt járn

Fimmtu­daginn 18. ágúst og næstu daga þar á eftir mun fyrir­tækið HP Gámar í samstarfi við Kubb, vinna að því að fjar­lægja járna­drasl á sunn­an­verðum Vest­fjörðum.


Skrifað: 17. ágúst 2022

Auglýsingar

Ef þú hefur í þínum fórum járn í stærri kantinum sem þú vilt losna við, bílar eða svipað (bara stærri hlutir) er þarna tækifæri til að koma því í endurvinnslu án þess að greiða fyrir móttöku.

Þeir sem geta hugsað sér að koma efni til úrvinnslu geta sett sig í samband við eftirfarandi aðila til að fá meiri upplýsingar um verkið.

Sigmar HP gámar, sími 893 3719

Vesturbyggð hvetur alla sem hafa járn í sínum fórum og hafa hugsað sér að koma því í endurvinnslu að nýta sér þetta tækifæri, sérstaklega þar sem ekki eru líkur á að svona söfnun muni eiga sér stað aftur hér á svæðinu þar sem framtíðarferill í meðförum járns verður að keyra járni í burtu jafnóðum og söfnun hefur átt sér stað.

Sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs

Geir Gestsson geir@vesturbyggd.is / 450 2300