Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Viltu verja sumrinu á Vest­fjörðum?

Vest­fjarða­stofa leitar að nemum með áhuga og þekk­ingu á  skipu­lags­málum, umhverf­is­málum, gagna­söfnun og miðlun gagna.


Skrifað: 12. maí 2021

Störfin sem auglýst eru snúa að kortlagningu og greiningu innviða á Vestfjörðum, söfnun og miðlun gagna því tengt.  Jafnframt vinna með gagnasöfn og skráningu á vef.

Skilyrði og forsendur:

  • Sumarstörf eru fyrir námsmenn milli anna (þ.e. séu að koma úr námi og séu skráðir í nám að hausti)
  • Námsmenn þurfa að vera að lágmarki 20 ára á árinu
  • Ráðningartími er 10 vikur á tímabilinu 1. júní – 31. ágúst

Hæfniskröfur:

  • Góð tölvu- og tæknifærni
  • Hugarfar sköpunar, grósku og nýsköpunar
  • Þjónustulund og jákvæðni
  • Góð tal- og ritfærni

Umsóknarfrestur er til og með 21. maí 2021

Viðkomandi getur unnið á einhverri af fjórum starfsstöðvum Vestfjarðastofu; Ísafirði, Patreksfirði, Hólmavík eða Þingeyri.

Störfin hljóta stuðning úr átaksverkefni um fjölgun sumarstarfa. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum FOS Vest við Samband íslenskra sveitarfélaga.

Nánari upplýsingar veitir: Sigríður Ó. Kristjánsdóttir (sirry@vestfirdir.is). Umsókn ásamt ferilskrá skal senda á netfangið sirry@vestfirdir.is merkt: Sumarstarf