Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir næstum 3 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Vinnu­skóli sumarið 2021

Vinnu­skóli sumarið 2021 hefst þriðju­daginn 8. júní. Skrán­ingar eru nú hafnar og verður tekið við umsóknum til miðviku­dagsins 2. júní.


Skrifað: 12. maí 2021

  • 10. bekkur: 8 vikur, 7 klst. á dag
  • 9. bekkur: 8 vikur,  7 klst. á dag
  • 8. bekkur: 6 vikur, 4 klst á dag
  • 7. bekkur: 4 vikur, 4 klst á dag

Skráningar fara fram á heimasíðu Vesturbyggðar með útfyllingu eyðublaðs. Einnig er hægt að nálgast skráningarblöð til útfyllingar í Ráðhúsi Vesturbyggðar að Aðalstræti 75, Patreksfirði og á skrifstofu Menningar- og ferðamálafulltrúa í Skrímslasetrinu á Bíldudal.

Afhenda þarf útfyllt skráningareyðublað undirritað af foreldri og með réttum reikningsupplýsingum starfsmanns, annars telst skráning ekki gild. Eyðublaðið má nálgast hér til hliðar.