Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir næstum 4 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Árgangur 2003 velkominn í Vinnu­skólann

Vest­ur­byggð hefur ákveðið að bjóða ungmennum fæddum 2003 starf í Vinnu­skól­anum í sumar. Þessi störf eru tilkomin vegna atvinnu­ástandsins í samfé­laginu okkar.


Skrifað: 3. júní 2020

Fréttir

Ungmennin munu starfa undir flokkstjórum eins og aðrir nemendur Vinnuskólans. Gert er ráð fyrir því hægt verði að starfa 7 klst á dag í 8 vikur eða tímabilið 9. júní – 5. ágúst.

Ungmennin yrðu ráðin í launaflokk 117 skv. launatöflu Félags opinberra starfsmanna á Vestfjörðum.

Umsækjendur eru beðnir um að fylla út eyðublað hér að neðan.