Yfirflokkstjóri og flokksstjóri hjá vinnuskóla
Vesturbyggð leitar að einstaklingum til starfa hjá vinnuskóla Vesturbyggðar sumarið 2023.
Yfirflokkstjórar
Vesturbyggð leitar eftir kröftugum, áhugasömum, skipulögðum og skemmtilegum einstaklingi til að starfa í vinnuskóla Vesturbyggðar, á Patreksfirði og Bíldudal fyrir sumarið 2023.
Um er að ræða 100% sumarstarf sem hentar öllum kynjum.
Í starfinu felst að skipuleggja sumarstarfið í samstarfi við áhaldahús, leiðbeina nemendum og vera í samskiptum við foreldra barna og unglinga.
Flokkstjórar
Vesturbyggð óskar eftir að ráða einstaklinga sem eiga gott að vinna með öðrum, hafa frumkvæði, eru góðar fyrirmyndir, stundvísir, metnaðarfullir og samviskusamir. Starf flokkstjóra felst í að vinna með ungmennum.
Umsóknarfrestur er til og með 5. maí 2023
Um er að ræða sumarstörf og eru laun og starfskjör í samræmi við kjarasamninga Félags opinberra starfsmanna á Vestfjörðum og Samband íslenskra sveitarfélaga.
Frekari upplýsinar gefur Arnheiður Jónsdóttir Sviðsstjóri fjölskyldusviðs og tekur hún einnig á móti umsóknum.