Vefur og miðlar
Sveitarfélagið leitast við að eiga góð samsipti við íbúa og gesti þess. Hægt er að hafa samband við ráðhúsið á opnunartíma þess en einnig fylgjast með starfsemi og tilkynningum hér á vefnum og samfélagsmiðlum.
Heimasíða Vesturbyggðar
Nýr vefur Vesturbyggðar opnaði sumarið 2018. Samtök vefiðnaðarins, SVEF, veittu vef Vesturbyggðar Íslensku vefverðlaunin í febrúar 2019. Vefurinn þótti þá bestur nýrra opinberra vefja og var valinn besti vefur ársins 2018. Í mars 2020 hlaut vefurinn á ný verðlaun SVEF sem besti opinberi vefur ársins 2019, þá annað árið í röð.
Vefurinn var uppfærður í maí 2024 í tengslum við sameiningu Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar og þjónar einnig sem talknafjordur.is.
Hönnun og forritun: Kolofon
Myndskreytingar: Vera Voishvilo
Verkefnastjórn og ritstjórn: Greipur Gíslason
Letur: Taz, eftir Lucas de Groot
Samfélagsmiðlar
Sveitarfélagið er virkt á samfélagsmiðlum, einkum Facebook og Instagram, til að stuðla að betri dreifingu frétta og tilkynninga. Hægt er að fylgja Vesturbyggð á báðum miðlum.