Framboð til heima­stjórna

Allir íbúar hvers svæðis eru í fram­boði til heima­stjórnar og kýs hver íbúi einn einstak­ling á því svæði sem hann býr. Þau sem gefa sérstak­lega kost á sér í býðst að kynna sig og sín áhugamál á þessari síðu. Kynn­ingar verða settar inn jafnóðum og þær berast, tekið verður við kynn­ingum á netfangið muggs­stofa@vest­ur­byggd.is til föstu­dags 3. maí klukkan 13:00.

Framboð til heimastjórnar Arnarfjarðar

Jón Þórð­arson

Gils­bakka 8, 465 Bíldudal

Ágætu íbúar Arnar­fjarðar í Vest­ur­byggð.

Ég, Jón Þórð­arson, Gils­bakka 8 465 Bíldudal, hef ákveðið að bjóða mig fram til heima­stjórnar í komandi kosn­ingum 4. maí 2024.

Það geri ég vegna áhuga um míns og vænt­umþykju á því samfé­lagi sem við byggjum. Það verður vænt­an­lega af ýmsu að taka á því sviði er heima­stjórnum er ætlað. Vænt­an­lega koma þar umhverf­ismál inn, svo og mörg önnur málefni. Mín trú er að þetta fyrir­komulag er varðar heima­stjórnir muni hafa þegar fram líða stundir jákvæð áhrif á okkar samfélag.

Sumir þekkja mig og vita hvað ég hef fengist við í gegnum ơðina, en það er ýmis­legt. Til dæmis; sjómennska, fisk­vinnsla, útgerð, endur­bygging mann­virkja, versl­unar rekstur og ferða­þjón­usta svo nokkuð sé nefnt.

Ég er tilbúinn til að vinna með hverjum sem er að fram­gangi okkar góða samfé­lags á ýmsum sviðum ef ég
fæ braut­ar­gengi til í kosn­ingum 4. maí 2024.

Góðar kveðjur
Jón Þórð­arson, Bíldudal.

Jón Þórðarson

Framboð til heimastjórnar Patreksfjarðar

Rebekka Hilm­ars­dóttir

Aðalstræti 69, Patreks­firði

Kæru íbúar,

Ég gef kost á mér til setu í heima­stjórn Patreks­fjarðar.

Ég er fædd á Patreks­firði 1984 og ólst upp í Kollsvík í fyrrum Rauðasands­hreppi. Ég er lögfræð­ingur að mennt og starfa sem sérfræð­ingur í matvæla­ráðu­neytinu.

Ég hef starfað í opin­berri stjórn­sýslu um árabil, m.a. í málefnum er snúa að land­búnaði og sjáv­ar­út­vegi. Þá gengdi ég starfi bæjar­stjóra Vest­ur­byggðar árin 2018-2022. Einnig hef ég setið í stjórnum ýmissa félaga og ráða, m.a. í skipu­lags- og umhverf­is­ráði Vest­ur­byggðar.

Ég brenn fyrir málefnum svæð­isins og í trausti ykkar vil ég leggja mitt á voga­skál­arnar til að samfélag okkar haldi áfram að eflast og dafna. Ég tel að þekking mín á svæðinu, reynsla og menntun komi til með að nýtast vel í þeim verk­efnum sem heima­stjórn Patreks­fjarðar verða falin í sameinuðu sveit­ar­fé­lagi.

Rebekka Hilm­ars­dóttir.

Rebekka Hilmarsdóttir

Sveinn Jóhann Þórð­arson

Urðar­götu 7, Patreks­firði

Kæru nágrannar,

Sveinn Jóhann Þórð­arson heiti ég og starfa í fiski og ýmsu barn­a­starfi. Ég hef brenn­andi áhuga á því að taka þátt í starfi heima­stjórnar, þá sérstak­lega með það að mark­miði að gera okkur að stærra og öflugra samfé­lagi. Ég tel að til þess þurfum við nokkra hluti til að við getum aukið þjón­ustu í okkar blessuðu byggð.

Okkur vantar að fá lágvöru­verslun, tann­lækni sem annað hvort býr hér eða kemur reglu­lega, fleiri og fjöl­breyttari fyrir­tæki svo við séum með öruggri stoðir fyrir samfé­lagið. Ég vil ýta á verð­andi bæjar­stjórn að efla tómstund­astarf, þá sérstak­lega fyrir 5. – 7. bekk og fram­halds­skóla­nema sem vantar skipu­lagt starf og aðstöðu fyrir mikil­vægt forvarn­ar­starf.

Kær kveðja,

Sveinn Jóhann Þórð­arson.

Sveinn Jóhann Þórðarson

Framboð til heimastjórnar Rauðasandshrepps og Barðastrandar

Ástþór Skúlason

Mela­nesi, Rauðas­andi

Ágætu íbúar Barða­strandar- og Rauðasands­hrepps hinna fornu.

Ég Ástþór Skúlason á Mela­nesi Rauðas­andi hef ákveðið að bjóða fram krafta mína til setu í heima­stjórn í komandi kosn­ingum þann 4. maí næst­kom­andi ef fólki hugnast að veita mér gengi til.

Það geri ég af áhuga og vænt­um­hyggju á þeirri náttúru og því samfé­lagi sem við búum í og mér er mikið í mun að greiða götu þess til uppbygg­ingar og varð­veislu sem frekast er kostur. Ég hef ekki háskóla­gráður til að státa af en ég tel mig þó hafa ágæta þekk­ingu á þeirri náttúru og lífríki sem við búum í.

Í von um að sem flestir geti nýtt sér atkvæð­is­rétt sinn þann 4. maí.

Kærar kveðjur

Ástþór Skúlason

Ástþór Skúlason

Edda Kristín Eiríks­dóttir

Grjót­hólum, Barða­strönd

Ágætu sveit­ungar,

Ég gef kost á mér til setu í heima­stjórn fyrrum Barða­strand­ar­hrepps og Rauðasands­hrepps. Heima­stjórnum er ætlað að tryggja áhrif og aðkomu heima­fólks að þeim ákvörð­unum sem teknar eru í sveit­ar­fé­laginu, ásamt því að koma málum á dagskrá bæjar­stjórnar. Ef þið treystið mér til starfa þá treysti ég mér í verk­efnið.

Ég er fædd á Patreks­firði 1973 og alin upp að hálfu hjá móður­for­eldrum mínum í Haga. Ég er sagn­fræði- og ferða­mála­fræði­menntuð, með leið­sögu­manns­próf, land­varða­rétt­indi og diplómu í opin­berri stjórn­sýslu. Um þessar mundir vinn ég að því að klára MPA nám í opin­berri stjórn­sýslu í HÍ.

Ég hef starfað hjá hinu opin­bera frá árinu 2012, fyrst hjá Þjóð­skrá Íslands sem deild­ar­stjóri en sem svæð­is­sér­fræð­ingur á sunn­an­verðum Vest­fjörðum í nátt­úru­vernd­art­eymi Umhverf­is­stofn­unar frá ársbyrjun 2017. Ég tel að reynsla mín og
menntun úr stjórn­sýsl­unni muni nýtast vel í þeim verk­efnum sem heima­stjórnum verða falin.

Mál sem eru mér hugleikin eru vernd­ar­svæði og virðing fyrir gæðum nátt­úr­unnar, samgöngu­bætur og þjón­usta. Fyrir sveit­irnar tel ég sérstak­lega brýnt að vel sé búið að fjöl­skyldu­fólki þar eð grund­völlur þess að samfélög eigi sér von um sjálf­bæra framtíð felst bein­línis í því að þar sé með góðu móti hægt að koma börnum á legg.

Með vinsemd

Edda Kristín Eiríks­dóttir, Grjót­hólum

Edda Kristín Eiríksdóttir

Framboð til heimastjórnar Tálknafjarðar

Jón Aron Bene­diktsson

Hvammi, Tálkna­firði

Kæru íbúar Tálkna­fjarðar og nær sveita,

Jón Aron Bene­diktsson heiti ég og mig langar að bjóða mig fram í heima­stjórn núna á komandi kjör­tíma­bili frá og með 4. maí 2024. Ég hef starfað hjá Lás ehf., undan­farin 4 ár, og er í flestum störfum þar en þó aðalega véla­vinnu og bílstjóri. Einnig starfa ég í slökkvi­liði Tálkna­fjarðar.

Ég hef búið á Tálkna­firði síðan 2020 en samt verið hér á Sunn­an­verðum Vest­fjörðum meiri hluta ævinnar. Ég er með miklar vonir um að fram­tíðin hér á svæðinu haldi áfram að dafna og eigi eftir að fjölga fólki þannig það verði hægt að byggja stærra og flottara samfélag.

Með bestu kveðjum

Jón Aron Bene­diktsson.

Jón Aron Benediktsson

Jónas Snæbjörnsson

Túngötu 28, Tálkna­firði

Kæru íbúar, ég heiti Jónas Snæbjörnsson og gef kost á mér í heima­stjórn í Tálkna­firði. Ég er fæddur 1984 og uppalinn á Tálkna­firði, Ég bjó í Reykjavík í 10 ár og flutti síðan aftur heim á Tálkna­fjörð árið 2014 ásamt eigin­konu minni, Heather Sosbee og börn­unum okkar tveimur, Noah Þráinn og Willow Þóru. Síðan þá hef ég starfað hjá Arnarlax. Áhuga­málin mín eru útivist, tónlist og ýmskonar menning. Ég er mennt­aður sem hljóð­tæknir frá Tækni­skól­anum (Diploma) og sem  fisk­eld­is­fræð­ingur frá Háskól­anum á Hólum  (Diploma).

Á núver­andi kjör­tíma­bili í Tálkna­firði hef ég setið í Umhverfis- og bygg­ing­ar­nefnd og Fræðslu­nefnd ásamt því að vera vara­maður í sveit­ar­stjórn Tálkna­fjarð­ar­hrepps.  Ég er formaður holl­vina­fé­lags pollsins í Tálkna­firði “Poll­vina” og er í stjórn Skóg­rækt­ar­fé­lags Tálkna­fjarðar. Einnig hef ég tekið að mér að vera plötu­snúður á dans­leikjum og skemmt­unum á svæðinu.

Ég hef áhuga á umhverf­is­málum, auknu fram­boði á afþrey­ingu, útiveru og fjöl­breyttri menn­ingu fyrir heima­menn jafnt sem ferða­menn. Ég hef mikinn metnað í að leggja mitt af mörkum fyrir bættu samfé­lagi í nýju sveit­ar­fé­lagi og því spenn­andi verk­efni að þróa nýja heima­stjórn í Tálkna­firði með samfé­lagið okkar að leið­ar­ljósi.

Jónas Snæbjörnsson

Trausti Jón Þór Gíslaon

Túngötu 39, 460 Tálkna­firði

Kæru nágrannar

Ég gef kost á mér til að sitja fyrir ykkur í heima­stjórn Tálkna­fjarðar.

Alveg síðan ég flutti hingað 2020 hef ég haft puttan á púls­inum hvað varðar okkar samfélag og mikinn áhuga á að leggja mitt að mörkum. Ég er í slökkvuliðinu, skóg­rækt­inni og formaður Björg­un­ar­sveit­ar­innar Tálkna. Ég starfa hjá Allt í Járnum.

Ég vill halda Tálkna­firði aðlað­andi kost fyrir komandi kynslóðir.

 

Kærar kveðjur

Trausti Jón Þór Gíslason

Trausti Jón Þór Gíslason