Hoppa yfir valmynd

Bæjarráð #641

Fundur haldinn í fundarsal bæjarstjórnar að Aðalstræti 63, Patreksfirði, 17. apríl 2012 og hófst hann kl. 08:30

Fundargerð ritaði
  • Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri

Fundargerðir til kynningar

1. SÍS fundargerð landsþings 23.03.2012

Lögð fram fundargerð SÍS frá landsþingi 23.03.2012. 

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Almenn erindi

2. Jöfnunarsjóður tímabundin breyting á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga

Lagt fram bréf frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna tímabundinna breytinga á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


3. Umhverfisstofnun starfsleyfisútgáfa Arnarlax endurupptekin

Lagt fram bréf frá Umhverfisstofnun vegna endurupptöku á starfsleyfisútgáfu Arnarlax ehf. þar sem óskað er eftir umsögn bæjarráðs Vesturbyggðar fyrirliggjandi tillögu. Bæjarráð Vesturbyggðar bendir Umhverfisstofnun á að kanna önnur fyrirliggjandi leyfi til nýtingar auðlinda í Arnarfirði og staðsetningar á þeim og leggur áherslu á að í gangi sé vinna að nýtingaráætlun Arnarfjarðar og nauðsynlegt sé að taka tillit til þess. Að öðru leyti gerir bæjarráð Vesturbyggðar ekki athugasemd við starfsleyfisumsóknina.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


4. Alþingi atvinnuveganefnd beiðni um umsögn stjórn fiskveiða mál nr.657

Lagt fram bréf frá atvinnuveganefnd Alþingis þar sem óskað er eftir umsögn um stjórn fiskveiða, mál nr. 657.Lögð fram skýrsla frá KPMG um áhrif  lagafrumvarpsins á sveitarfélagið Vesturbyggð.KPMG metur það svo að veiðigjöldin verði í kringum 220 milljónir

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


5. Alþingi beiðni um umsögn frumvarp um veiðigjöld mál nr.658

Bæjarstjórn Vesturbyggðar gerir alvarlegar athugasemdir við þau lagafrumvörp   um stjórn fiskveiða og veiðigjald sem nú liggja fyrir Alþingi. Sérstaklega er gerð athugasemd við lagafrumvarp nr. 658 um veiðigjöld. Bæjarstjórn Vesturbyggðar krefst þess af Alþingi að reiknuð verði út af hlutlausum aðila áhrif fyrirhugaðra breytinga á stjórn fiskveiða og viðbótar skattlagningar á útgerðir. .Kannað verði rækilega hvaða áhrif fyrirhugaðar breytingar muni hafa í för með sér á samfélögin og útgerðirnar, og þá sérstaklega á þá landshluta sem verið hafa í varnarbaráttu áratugum saman og þær niðurstöður verði kynntar opinberlega áður en lengra er haldið.
Bæjarstjórn Vesturbyggðar bendir á greinargerð óháðra sérfræðinga, þeirra Þórodds Bjarnasonar og Daða Más Kristóferssonar sem fylgir lagafrumvörpunum og unnin var að beiðni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins. Sú greinargerð ætti að hvetja stjórnvöld til að staldra við og ígrunda gaumgæfilega áhrif lagasetningarinnar á rekstur og afkomu sjávarútvegsfyrirtækja og sjávarbyggðir landsins. Sérfræðingarnir búast við ”umhleypingum á næstu árum meðan útgerðin lagar sig að breyttum aðstæðum“ og segja að áformuð lagasetning muni verða ”mjög íþyngjandi fyrir rekstur sjávarútvegsfyrirtækja“. Enn fremur að hækkun veiðigjalds muni án efa ”kippa stoðum undan skuldsettari útgerðarfyrirtækjum.“
Bæjarstjórn Vesturbyggðar hefur nú þegar fengið ráðgjafa og endurskoðendafyrirtækið KPMG til að vinna álit sem er meðfylgjandi þessari umsögn, á því hvaða áhrif boðaðar lagabreytingarnar kunni að hafa á Vesturbyggð. Niðurstaðan er sú amk. 220 milljónir fari í greiðslu á veiðigjaldi og kvótastaðan muni minnka. Þá eru líkleg viðbrögð útgerðarinnar og tengdra fyrirtækja að  a.m.k 6-8 starfsmönnumverði sagt upp, auk ófyrirsjáanlegra afleiddra áhrifa. Telur KPMG að þetta sé mjög varlega áætlað. Bein áhrif á bæjarsjóð vegna útsvarslækkunar eru metin allt að 19 milljónir og er það líka mjög varlega áætlað. Með þessu má álykta að tæpar 300 milljónir flytjist frá Vesturbyggð til Reykjavíkur. Reynslan hefur sýnt að heldur ólíklegt er að þeir fjármunir skili sér til baka. Þá meta stjórnendur stærstu sjávarútvegsfyrirtækjanna í Vesturbyggð það svo að rekstur þeirrar þoli ekki margföldun veiðigjalds og að þau verði gjaldþrota á mjög stuttum tíma ef greiða á allt að 70% af rekstrarafgangi til ríkisins.
Vandséð er hvernig þessum frumvörpum er ætlað að styðja við áform um að byggja upp öflugri samfélög á landsbyggðinni.
Bæjarstjórn Vesturbyggðar bendir jafnframt á ályktun fjórðungsþings Fjórðungssambands Vestfirðinga árið 2011 um auðlindagjald, sem segir:
 
" 56. Fjórðungsþing Vestfirðinga haldið í Bolungarvík 2.-3. september 2011 skorar á Alþingi að tryggja að það auðlindagjald sem nú er innheimt af vestfirskum aflaheimildum og öll aukning þess renni til uppbyggingar atvinnulífs á Vestfjörðum. Auðlindagjaldið renni til rannsókna, nýsköpunar og í fjárfestingarsjóð fyrir vestfirskar byggðir."
 
Útreikningar KPMG leiða í ljós að 3-12 milljónir komi í hlut Vesturbyggðar af útleigu aflaheimilda. Sú upphæð er aðeins brota brot af þeim fjármunum sem tapast úr samfélaginu við lagabreytinguna.
 
Bæjarstjórn Vesturbyggðar varar stjórnvöld við  að taka vanhugsaðar ákvarðanir sem geti stuðlað að hruni í sjávarútvegi og tengdum greinum, atvinnuleysi og þar með fólksflótta á landsbyggðinni. Þau varnaðarorð sérfræðinga sem fylgja lagafrumvörpunum  og þeir útreikningar óháðra aðila sem sveitarfélögin hafa látið vinna ættu að vera ærin ástæða fyrir alþingismenn að endurskoða frumvörpin , frekar en að stuðla að lögfestingu þeirra og stuðla þannig að ”umhleypingum“ með alvarlegum afleiðingum fyrir fólk og fyrirtæki í sjávarbyggðum landsins. Má í því sambandi nefnamögulegri lækkun launa sjómanna og fiskverkafólks, lækkunar útsvarstekna sveitarfélaga, minni fjárfestingagetu sjávarútvegsfyrirtækja á landsbyggðinni og þar með en minni atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni en nú er.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


6. Iðnaðarráðuneytið þingsályktunartillaga um mótun stefnu um lagningu raflína í jörð

Lagt fram til kynningar bréf frá Iðnaðarráðuneyti vegna stefnumótunar um lagningu raflína í jörð.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


7. Vesturferðir aðalfundarboð 14.04.2012

Lagt fram til kynningar aðalfundarboð frá Vesturferðum. Fundurinn var haldinn 14. apríl sl.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


8. Athugasemd nr:1 vegna deiliskipulags Klif

Framhald frá fyrri fundum bæjarráðs. Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við Jóhönnu Gísladóttur um uppkaup á lóðinni.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


9. Athugasemd nr:2 vegna deiliskipulags við Klif

Framhald frá fyrri fundum bæjarráðs. Bæjarráð samþykkir uppkaup á lóðinni Stekkum 5A af Jóni BG Jónssyni á 1.200.000 krónur með 1.000.000 kr framlagi frá Ofanflóasjóði. Bæjarráð felur bæjarstjóra að afgreiða málið.  

Málsnúmer3

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


10. Nýting forkaupsréttar á geymsluhúsnæði á Krossholtum

Lagt fram bréf frá Hjálparsveitinni Lómfelli þar sem Vesturbyggð er boðið að nýta forkaupsrétt sinn á stálgrindarhúsi Hjálparsveitarinnar Lómfells að Krossholtum. Bæjarráð mun ekki nýta sér forkaupsrétt sinn á húsnæðinu.  

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


12. Forstöðumaður Þjónustumiðstöðvar á Patreksfirði

Bæjarráð leggur til að að MIchael Wulfken verði ráðinn forstöðumaður Þjónustumiðstöðvar á Patreksfirði og var hann eini umsækjandinn um stöðuna. Bæjarstjóra falið að ganga frá samningum við Michael.  

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Til kynningar

11. tvöföld búseta

Lögð fram ályktun frá Búnaðarþingi 2012 um tvöfalda búsetu. Bæjarráð Vesturbyggðar tekur undir ályktun Búnarðarþing 2012 og hvetur stjórnvöld til að taka til umfjöllunar þetta mikla hagsmunamál landsbyggðarinnar.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 08:30