Hoppa yfir valmynd

Bæjarráð #900

Fundur haldinn í fjarfundi, 14. ágúst 2020 og hófst hann kl. 14:00

Nefndarmenn
  • Ásgeir Sveinsson (ÁS) aðalmaður
  • Iða Marsibil Jónsdóttir (IMJ) aðalmaður
  • Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) formaður
Starfsmenn
  • Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Fundargerð ritaði
  • Gerður Björk Sveinsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Almenn erindi

1. Auglýsing um ákvörðun ráðherra vegna neyðarstigs almannavarna af völdum Covid-19

Lögð fram auglýsing nr. 780/2020 um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, skv. VI. bráðabrigðaákvæði sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 vegna farsóttar af völdum Covid-19. Samkvæmt auglýsingunni veitir ráðherra sveitarstjórnum tímabundna heimild til að víkja frá tilteknum ákvæðum sveitarstjórnarlaga, svo sveitarstjórn sé starfhæf þegar lýst hefur verið yfir neyðarstigi almannavarna á Íslandi.

Lögð fram tillaga að tímabundinni heimild til breytinga á fyrirkomulagi funda bæjarstjórnar Vesturbyggðar og fastanefndum Vesturbyggðar, heimildin gildir til 10. nóvember 2020.

Lagt er til að svo tryggja megi starfhæfi bæjarstjórnar Vesturbyggðar og til að auðvelda ákvarðanatöku að notaður verði fjarfundabúnaður á fundum bæjarstjórnar og fastanefnda Vesturbyggðar. Engin takmörk verði á fjölda fundarmanna sem tekið geta þátt í fundum bæjarstjórnar og nefnda í fjarfundabúnaði. Einnig samþykkir bæjarstjórn Vesturbyggðar að ritun fundargerða fari fram með öðrum hætti en mælt er fyrir um í leiðbeiningum innanríkisráðuneytisins um ritun fundargerða nr. 22/2013, frá 15. janúar 2013. Fundargerð skal deilt með öllum fundarmönnum á skjá við lok fundar og lesin yfir, hún skal svo send fundarmönnum til staðfestingar í tölvupósti eða undirrituð með rafrænum hætti.

Samþykkt samhljóða.

    Málsnúmer 2003041 3

    Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


    Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:10