Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 9. febrúar 2021 og hófst hann kl. 16:30
Nefndarmenn
- Ásgeir Sveinsson (ÁS) aðalmaður
- María Ósk Óskarsdóttir (MÓÓ)
- Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) formaður
Starfsmenn
- Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) skrifstofustjóri
- Rebekka Hilmarsdóttir (RH) bæjarstjóri
Fundargerð ritaði
- Gerður Björk Sveinsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Almenn erindi
1. Lánasjóður sveitarfélaga - Lántökur ársins 2021
Lögð fram drög að umsókn Vesturbyggðar um lántökur á árinu 2021 hjá Lánasjóði sveitarfélaga að upphæð 416 millj.kr. Lántaka er í samræmi við fjárhagsáætlun ársins 2021 og er tekið til að endurfjármagna hluta afborgana lána sveitarfélagsins hjá Lánasjóði sveitarfélaga á árinu 2021 og til að fjármagna framkvæmdir og fjárfestingar á árinu 2021 sbr. lög um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr., 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Bæjarráð samþykkir lántökuna og vísar áfram til Bæjarstjórnar til staðfestingar.
2. Lás ehf. Reikningar vegna gatnagerðar, Járnhóll.
Bæjarstjóri fór yfir samskipti við Lás ehf. vegna reikninga fyrir gatnagerð og drög að samkomulagi. Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita samkomulagið.
3. Íþróttamiðstöðin Bylta, Bíldudal
Rætt um opnunartíma í Byltu og uppsetningu innstimplunarkerfis, sem nú er í prófun. Með innstimplunarkerfinu verður aðgengi að þreksal hússins aukið verulega. Þá var rætt um rekstur tjaldstæðisins á Bíldudal og samspil þess við rekstur Byltu.
Einnig var rætt um mögulegar breytingar á opnunartíma Byltu í haust með tilkomu innstimplunarkerfisins.
Til kynningar
4. Ákvörðun um útgáfu starfsleyfis fyrir Íslenska kalkþörungafélagið allt að 120.000 tonn árlega - Umhverfisstofnun
Lögð fram til kynningar ákvörðun Umhverfisstofnunar um útgáfu starfsleyfis fyrir Íslenska kalkþörungafélagið. Starfsleyfið gildið til 29. janúar 2037.
5. Mál nr. 418, um stjórn fiskveiða (atvinnu- og byggðakvótar o.fl.) Ósk um umsögn.
Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá nefndarsviði Alþingis dags. 22. janúar 2021, þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða(atvinnu- og byggðakvótar o.fl.), 418. mál.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að skila inn umsögn í samræmi við umræður á fundinum.
6. Mál nr. 419, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu, sandkola og hryggleysingja). Ósk um umsögn
Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá nefndarsviði Alþingis dags. 22. janúar 2021, þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu, sandkola og hryggleysingja), 419. mál.
7. Mál nr. 375, um jarðlög (einföldun regluverks, vernd landbúnaðarlands, upplýsingaskylda o.fl.) Ósk um umsögn
Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá nefndarsviði Alþingis dags. 21. janúar 2021, þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um jarðalög (einföldun regluverks,vernd landbúnaðarlands, upplýsingaskyldu o.fl), 375. mál.
8. Mál nr. 370 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða. Ósk um umsögn
Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá nefndarsviði Alþingis dags. 26. janúar 2021, þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um áætlun umvernd og orkunýtingu landsvæða, 370. mál.
9. Mál nr. 378 um breytingu á sveitarstjórnarlögum og lögum um tekjustofn sveitarfélaga (lágmarksíbúafjöldi sveitarfélags). Ósk um umsögn
Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá nefndarsviði Alþingis dags. 28. janúar 2021, þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum og lögum um tekjustofna sveitarfélaga (lágmarksíbúafjöldi sveitarfélags), 378. mál.
10. Mál nr. 121 um heimild sveitarfélaga til að innheimta umhverfisgjöld. Ósk um umsögn
Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá nefndarsviði Alþingis dags. 28. janúar 2021, þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um heimild sveitarfélaga til að innheimta umhverfisgjöld, 121. mál.
11. Beiðni um upplýsingar um nýtingu íbúðarhúsnæðis sem virðist standa autt - Hagstofa Íslands
Lagt fram til kynningar beiðni Hagstofu Íslands dags. 27.01.2021 um upplýsingar um nýtingu íbúðarhúsnæðis sem virðist standa autt.
12. Drög að umsöng - Breytingar á úrgangslöggjöf
Lögð fram til kynningar drög að umsögn Sambands Íslenskra sveitarfélaga dags. 04.02.2021 um drög að breytingu á lögum vegna innleiðingar hringrásarhagkerfisins.
13. Mál nr. 478 um breytingar á ýmsum lögum tengdum málefnum sveitarfélaga (sveitarfélög og kórónuveirufaraldur). Ósk um umsögn.
Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá nefndarsviði Alþingis dags. 4. febrúar 2021, þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum tengdum málefnum sveitarfélaga (sveitarfélög og kórónuveirufaraldur), 478. mál.
14. Mál nr. 471 um stefnumarkandi áætlanir á sviði samgangna, fjarskipta og byggðamála. Ósk um umsögn.
Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá nefndarsviði Alþingis dags. 4. febrúar 2021, þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um stefnumarkandi áætlanir á sviði samgangna, fjarskipta og byggðamála, 471. mál.
15. Fundargerðir stjórnar Náttúrustofu Vestfjarða
16. Fundargerðir Breiðafjarðarnefndar 2020
17. Fundargerð nr. 893 stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:20