Hoppa yfir valmynd

Fasteignir Vesturbyggðar #75

Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 15. júlí 2020 og hófst hann kl. 16:00

Nefndarmenn
  • Jón Árnason (JÁ) varamaður
  • Guðný Sigurðardóttir (GS) formaður
  • Jónas Heiðar Birgisson (JHB) aðalmaður
Starfsmenn
  • Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
  • Rebekka Hilmarsdóttir (RH) framkvæmdastjóri

Fundargerð ritaði
  • Gerður Björk Sveinsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Almenn erindi

1. Aðalfundur Fasteignir Vesturbyggðar ehf. 2020

1. Setning aðalfundar
Formaður stjórnar Guðný Sigurðardóttir setti fundinn eftir að hafa kannað lögmæti fundarins.

2. Kosning fundastjóra og ritara
Formaður lagði til að Rebekka Hilmarsdóttir yrði fundarstjóri og Gerður Björk Sveinsdóttir ritaði fundargerð. Samþykkt samhljóða.

3. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár.
Formaður fór yfir skýrslu stjórnar fyrir liðið starfsár. Stjórn Fasteigna Vesturbyggðar fundaði þrisvar sinnum á árinu 2019, þ.e. 9. apríl, 9. september og 17. október. Hagnaður varð á rekstri félagsins á árinu að fjárhæð 4,9 millj. kr. Eigið fé félagsins í árslok var neikvætt um 103,3 millj. kr.

4. Lagður fram endurskoðaður ársreikningur félagsins.
Lagður var fram ársreikningur ársins 2019 ásamt áritun endurskoðenda. Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs Vesturbyggðar fór yfir helstu liði ársreikningsins en hann sýnir að rekstrarniðurstaða án fjármunatekna og fjarmagnsgjalda er 15.042.958 kr. Fjármagnsgjöld eru 10.126.895 kr. og hagnaður ársins 4.916.063 kr. Eigið fé var 103.286.049 kr. og skuldir 210.354.003 kr.

Ársreikningurinn var ræddur, síðan borin upp til samþykktar. Ársreikningurinn 2019 var samþykktur samhljóða og áritaður af stjórn og framkvæmdastjóra.

5.Meðferð hagnaðar eða taps félagsins á árinu.
Stjórn félagsins gerir ekki tillögu um arðgreiðslu til hluthafa á árinu 2020 vegna ársins 2019 en vísað er til ársreiknings um ráðstöfun hagnaðar og aðrar breytingar á eiginfjárreikningum á árinu.

6. Leiguverð
Leiguverð í eignum félagsins er ákvarðað skv. gjaldskrá Vesturbyggðar.

7. Kosning formanns.
Kjörinn var formaður Þórkatla Soffía Ólafsdóttir.

8. Kosning tveggja meðstjórnenda.
Kjörin voru Iða Marsibil Jónsdóttir og Ásgeir Sveinsson.

9. Kosning þriggja varamanna í stjórn.
Kjörnir voru Jón Árnason, María Ósk Óskarsdóttir og Magnús Jónsson.

10. Breyting á samþykktum félagsins.
Lögð fram tillaga að breytingu á samþykktum félagsins þar sem lagt er til að ákvæði í 28. gr. og 29. gr. samþykkta Fasteigna Vesturbyggðar ehf. verði breytt og verði svohljóðandi:

28. gr.
Á aðalfundi félagsins skal kjósa einn eða fleiri löggilta endurskoðendur eða skoðunarmenn.
Skulu þeir rannsaka reikninga félagsins fyrir hvert starfsár og leggja niðurstöður sínar fyrir aðalfund. Endurskoðendur eða skoðunarmenn má ekki kjósa úr hópi stjórnarmanna eða starfsmanna félagsins.

29. gr.
Starfsár og reikningsár er almanaksárið. Stjórn félagsins skal hafa lokið gerð ársreikninga og lagt fyrir endurskoðendur eða skoðunarmenn eigi síðar en einum mánuði fyrir aðalfund.

Tillagan rædd og síðan borin upp til samþykktar. Breyting á 28. og 29. gr. samþykkta Fasteigna Vesturbyggðar ehf. samþykkt samhljóða og framkvæmdastjóra falið að tilkynna breytinguna til fyrirtækjarskrár.

11. Kosning endurskoðanda/skoðunarmanns
Lögð var fram tillaga um að KPMG ehf. sinni áfram endurskoðun án áritunar fyrir félagið. Samþykkt samhljóða.

12. Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna, varamanna og endurskoðanda.
Lögð fram tillaga um að þóknun stjórnar fyrir fundarsetur verði óbreytt þannig að hún sé sú sama og þóknun til nefndarsetu í nefndum Vesturbyggðar. Greiðsla til löggiltra endurskoðenda skal vera skv. framlögðum reikningi. Samþykkt samhljóða.

13. Önnur mál
Engin önnur mál lágu fyrir.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:33