Hoppa yfir valmynd

Fasteignir Vesturbyggðar #80

Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 4. október 2022 og hófst hann kl. 14:00

Nefndarmenn
  • Anna Vilborg Rúnarsdóttir (AVR) aðalmaður
  • Jón Árnason (JÁ) aðalmaður
  • Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) formaður
Starfsmenn
  • Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
  • Þórdís Sif Sigurðardóttir (ÞSS) framkvæmdastjóri

Fundargerð ritaði
  • Gerður Björk Sveinsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Almenn erindi

1. Aðalfundur Fasteignir Vesturbyggðar ehf.

1. Setning aðalfundar
Formaður stjórnar Þórkatla Soffía Ólafsdóttir setti fundinn eftir að hafa kannað lögmæti fundarins.

2. Kosning fundastjóra og ritara
Formaður lagði til að Þórdís Sif Sigurðardóttir yrði fundarstjóri og Gerður Björk Sveinsdóttir ritaði fundargerð. Samþykkt samhljóða.

3. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár.
Framkvæmdastjóri fór yfir skýrslu stjórnar fyrir liðið starfsár. Hagnaður varð á rekstri félagsins á árinu að fjárhæð 6,8 millj. kr. Eigið fé félagsins í árslok var neikvætt um 65,2 millj. kr.

4. Lagður fram ársreikningur félagsins.
Lagður var fram ársreikningur ársins 2021. Rekstrarniðurstaða án fjármunatekna og fjarmagnsgjalda er 16,8 millj. kr. Fjármagnsgjöld eru 10. millj. kr. og hagnaður ársins 6,8 millj. kr. Eigið fé var 65,2 millj. kr. og skuldir 140 millj. kr.

Ársreikningurinn var ræddur, síðan borin upp til samþykktar. Ársreikningurinn 2021 var samþykktur samhljóða.

5.Meðferð hagnaðar eða taps félagsins á árinu.
Stjórn félagsins gerir ekki tillögu um arðgreiðslu til hluthafa á árinu 2022 vegna ársins 2021 en vísað er til ársreiknings um ráðstöfun hagnaðar og aðrar breytingar á eiginfjárreikningum á árinu.

6. Leiguverð
Leiguverð í eignum félagsins er ákvarðað skv. gjaldskrá Vesturbyggðar.

7. Kosning formanns.
Kjörinn var formaður Þórkatla Soffía Ólafsdóttir.

8. Kosning tveggja meðstjórnenda.
Kjörin voru Jón Árnason og Anna Vilborg Rúnarsdóttir

9. Kosning þriggja varamanna í stjórn.
Kjörnir voru Svanhvít Sjöfn Skjaldardóttir, Friðbjörn Steinar Ottósson og Guðrún Eggertsdóttir

10. Kosning endurskoðanda/skoðunarmanns
Lögð var fram tillaga um að KPMG ehf. sinni áfram endurskoðun án áritunar fyrir félagið. Samþykkt samhljóða.

11. Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna, varamanna og endurskoðanda.
Lögð fram tillaga um að þóknun stjórnar fyrir fundarsetur verði óbreytt þannig að hún sé sú sama og þóknun til nefndarsetu í nefndum Vesturbyggðar. Greiðsla til löggiltra endurskoðenda skal vera skv. framlögðum reikningi. Samþykkt samhljóða.

12. Önnur mál
Engin önnur mál lágu fyrir.

    Málsnúmer 2006094 2

    Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


    Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:30