Hoppa yfir valmynd

Fasteignir Vesturbyggðar #81

Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 29. ágúst 2023 og hófst hann kl. 14:00

Nefndarmenn
  • Guðrún Eggertsdóttir (GE) varamaður
  • Svanhvít Sjöfn Skjaldardóttir (SSS) varamaður
  • Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) formaður
Starfsmenn
  • Þórdís Sif Sigurðardóttir (ÞSS) framkvæmdastjóri

Fundargerð ritaði
  • Þórdís Sif Sigurðardóttir framkvæmdastjóri

Almenn erindi

1. Aðalfundur Fasteignir Vesturbyggðar

1. Setning aðalfundar
Formaður stjórnar Þórkatla Soffía Ólafsdóttir setti fundinn eftir að hafa kannað lögmæti fundarins.

2. Kosning fundastjóra og ritara
Formaður lagði til að Þórdís Sif Sigurðardóttir yrði fundarstjóri og Þórdís Sif Sigurðardóttir ritaði fundargerð. Samþykkt samhljóða.

3. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár.
Framkvæmdastjóri fór yfir skýrslu stjórnar fyrir liðið starfsár. Tap varð á rekstri félagsins á árinu að fjárhæð 13 millj. kr. Eigið fé félagsins í árslok var neikvætt um 78,2 millj. kr.

4. Lagður fram ársreikningur félagsins.
Lagður var fram ársreikningur ársins 2022. Rekstrarniðurstaða án fjármunatekna og fjarmagnsgjalda er 3,2 millj. kr. Fjármagnsgjöld eru 16,4. millj. kr. og tap ársins 13 millj. kr. Eigið fé var neikvætt um 78,2 millj. kr. og skuldir 153,6 millj. kr.
Ársreikningurinn var ræddur, síðan borin upp til samþykktar. Ársreikningurinn 2022 var samþykktur samhljóða.

5.Meðferð hagnaðar eða taps félagsins á árinu.
Stjórn félagsins gerir ekki tillögu um arðgreiðslu til hluthafa á árinu 2023 vegna ársins 2022 en vísað er til ársreiknings um jöfnun taps og aðrar breytingar á eiginfjárreikningum á árinu.

6. Leiguverð
Leiguverð í eignum félagsins er ákvarðað skv. gjaldskrá Vesturbyggðar.

7. Kosning formanns.
Kjörinn var formaður Þórkatla Soffía Ólafsdóttir.

8. Kosning tveggja meðstjórnenda.
Kjörin voru Jón Árnason og Anna Vilborg Rúnarsdóttir.

9. Kosning þriggja varamanna í stjórn.
Kjörnir voru Svanhvít Sjöfn Skjaldardóttir, Friðbjörn Steinar Ottósson og Guðrún Eggertsdóttir.

10. Kosning endurskoðanda/skoðunarmanns
Lögð var fram tillaga um að KPMG ehf. sinni áfram endurskoðun án áritunar fyrir félagið. Samþykkt samhljóða.

11. Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna, varamanna og endurskoðanda.
Lögð fram tillaga um að þóknun stjórnar fyrir fundarsetur verði óbreytt þannig að hún sé sú sama og þóknun til nefndarsetu í nefndum Vesturbyggðar. Greiðsla til löggiltra endurskoðenda skal vera skv. framlögðum reikningi. Samþykkt samhljóða.

12. Önnur mál
Engin önnur mál lágu fyrir.

    Málsnúmer 2308041

    Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


    2. Fasteignir Vesturbyggðar ehf. - Tilkynning um breytingu á framkvæmdastjórn og prókúru

    Stjórn Fasteigna Vesturbyggðar ehf. samþykkir að Þórdís Sif Sigurðardóttir, kt. 180378-4999 taki við stöðu framkvæmdastjóra Fasteigna Vesturbyggðar ehf. og hafi prókúru fyrir félagið. Gerður Björk Sveinsdóttir er jafnframt með prókúru fyrir félagið.

    Samþykkt samhljóða.

      Málsnúmer 1811035 2

      Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


      Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:00