Hoppa yfir valmynd

Heimastjórn Arnarfjarðar #8

Fundur haldinn í Muggsstofu, Bíldudal, 12. mars 2025 og hófst hann kl. 16:30

Nefndarmenn
  • Jenný Lára Magnadóttir (JLM) aðalmaður
  • Rúnar Örn Gíslason (RÖG) formaður
  • Valdimar Bernódus Ottósson (VBO) varaformaður
Starfsmenn
  • Lilja Magnúsdóttir (LM) ritari heimastjórna

Fundargerð ritaði
  • Lilja Magnúsdóttir ritari

Formaður setti fund og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðið.
Svo var ekki og formaður lýsti fundinn lögmætan.

Almenn erindi

1. Ofanflóðavarnir á Bíldudal - deiliskipulag

Tillaga að deiliskipulagi ofanflóðavarna á Bíldudal eftir auglýsingu. Tillagan var auglýst með athugasemdafresti til 4. mars 2025. Engar athugasemdir bárust frá almenningi en fyrir liggja umsagnir frá Minjastofnun Íslands, Veðurstofu Íslands og
Náttúrufræðistofnun Íslands ásamt leiðréttum skipulagsgögnum.
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við heimastjórn Arnarfjarðar að tillagan verði
samþykkt og að hún verði afgreidd skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Heimastjórn Arnarfjarðar lýsir vonbrigðum sínum með að ekki hafi náðst samkomulag við landeigendur Litlu-Eyrar um varnir í landi Litlu-Eyrar sem leiddi til styttingar varnargarðsins.
Heimastjórn Arnarfjarðar samþykkir tillöguna eins og hún liggur fyrir eftir breytingar frá auglýsingu og afgreiðir tillöguna skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða

Málsnúmer4

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Ofanflóðavarnir á Bíldudal, Stekkjargil og Milligil. Umsókn um framkvæmdaleyfi

Erindi frá Vesturbyggð, dags. 5. mars 2025. Í erindinu er sótt um framkvæmdaleyfi fyrir ofanflóðavörnum á Bíldudal. Reistur verður 8- 14 m hár og 800 m langur þvergarður ofan byggðarinnar en neðan Stekkjar-, milligilja. Jafnframt verða reistar þrjár 4,5 m háar keilur neðan Stekkjargils. Gert er ráð fyrir að framkvæmdirnar muni taka u.þ.b. 3 ár en upphaf og framvinda ræðst af fjárframlögum til verkefnisins.

Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við heimastjórn Arnarfjarðar að erindið verði samþykkt og að skipulagsfulltrúa verði heimilt að veita framkvæmdaleyfi sbr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þegar endanleg samþykkt deiliskipulags liggur fyrir í b-deild stjórnartíðinda.

Heimastjórn Arnarfjarðar samþykkir umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir ofanflóðavörnum fyrir ofan byggð á Bíldudal og samþykkir að skipulagsfulltrúa verði heimilt að veita framkvæmdaleyfi sbr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þegar endanleg samþykkt deiliskipulags liggur fyrir í b-deild stjórnartíðinda.
Heimastjórn Arnarfjarðar hvetur stjórnvöld til að leggja fjármagn í verkefnið sem allra fyrst til að unnt verði að hefja framkvæmdir og ljúka þeim á ásættanlegum tíma.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


3. Hafnarbraut 8. Umsókn um byggingarleyfi, breytingar íbúðarhús.

Erindi frá Guðlax ehf. dags 28. febrúar 2025. Í erindinu er sótt um samþykki byggingaráforma fyrir breytingum á Hafnarbraut 8 á Bíldudal. Áformað er að byggja 109,3 m2 hæð úr timbri ofan á húsið og fjölga íbúðum úr einni í tvær. Húsið er steinsteypt, byggt árið 1954. Erindinu fylgja aðaluppdrættir unnir af Verkfræðistofu Ívars Haukssonar, dags. 29. maí 2024.

Svæðið er skilgreint sem íbúðarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi Vesturbyggðar en er ódeiliskipulagt.

Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við Heimastjórn Arnarfjarðar að skipulagsfulltrúa verði falið að grenndarkynna byggingaráformin og fjölgun íbúða fyrir aðliggjandi lóðarhöfum. Ráðið óskar eftir því við framkvæmdaraðila að frekari gögn verði útbúin fyrir grenndarkynninguna, svo sem ásýndarmynd þar sem húsið sést í samhengi við önnur hús. Ráðið leggur til að framkvæmdin verði grenndarkynnt fyrir eigendum fasteignanna að Hafnarbraut 6 og 10, Dalbraut 1, 7 og 9.

Erindið lagt fyrir heimastjórn en í tölvupósti frá eiganda hússins í morgun kom fram að hann væri hættur við þessar breytingar á húsinu og drægi því umsóknina til baka.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


4. Deiliskipulag skóla-, íþrótta- og þjónustusvæðis á Bíldudal, óveruleg breyting.

Tekið fyrir eftir grenndarkynningu óveruleg breyting á deiliskipulagi skóla-, íþrótta- og þjónustusvæðis á Bíldudal. Grenndarkynningin var með athugasemdafrest til 13. febrúar 2025. Breytingin fjallar um að bætt er við kvöð um lagnaleið sunnan við skólabyggingu en um er að ræða fráveitulögn vegna ofanflóðvarna ofan byggðar við Bíldudal. Fyrir liggja umsagnir frá Heilbrigðiseftirliti Vestfjarða og Veðurstofu Íslands sem gerðu engar athugasemdir. Engar aðrar athugasemdir bárust við breytinguna.

Skipulags- og framkvæmdaráð lagði til við heimastjórn Arnarfjarðar á 7. fundi sínum þann 26. febrúar að tillagan fái málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Heimastjórn Arnarfjarðar samþykkir að tillagan fái málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer4

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


5. Heimastjórnir, fundir með íbúum

Umræða og ábendingar íbúa af fundi heimastjórnar með íbúum á Bíldudal þann 24.02.2025

Heimastjórn Arnarfjarðar þakkar íbúum fyrir góða mætingu og góðar umræður á kaffispjalli heimastjórnar á Vegamótum 24.feb.
Unnið verður áfram með þær hugmyndir og ábendingar sem fram komu á fundinum.

Málsnúmer3

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


6. Starfsáætlun heimastjórna 2025

Starfsáætlun heimastjórnar Arnarfjarðar 2025

Heimastjórn Arnarfjarðar samþykkir að halda íbúafund á Bíldudal 25. mars í félagsheimilinu Baldurshaga. Tímasetning verður auglýst síðar.

Málsnúmer12

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Til kynningar

7. Bíldudalsskóli og Tjarnarbrekka Hönnun og undirbúningur

Lagt fram til kynningar.

Málsnúmer8

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


8. Bíldudalur smábátaaðstaða

Lagt fram til kynningar.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:54