Hoppa yfir valmynd

Ráðning skólastjóra Tónlistarskóla Vesturbyggðar í veikindaleyfi.

Málsnúmer 1601012

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.

7. janúar 2016 – Fræðslu og æskulýðsráð

Auglýst var eftir skólastjóra í veikindaleyfi núverandi skólastjóra og stöðu tónlistarkennara. Enginn kennari er starfandi við tónlistarskólann í dag og mikilvægt að ráða aðila til starfa sem fyrst. Þrjár umsóknir bárust. Fræðsluráð leggur til að Kristinn Jóhann Níelsson, Fil. Cand í tónlistarfræðum og MA í hagnýtri menningarmiðlun verði ráðinn til tímabundinna starfa sem skólastjóri. Kristinn var áður tónlistarskólastjóri á Flateyri, Bolungarvík og í Vík í Mýrdal og aðstoðarskólastjóri Tónlistarskólans á Ísafirði.

Fræðslunefnd telur sömuleiðis mikilvægt að ráða kennara til viðbótar við starf skólastjóra í samræmi við áherslur bæjarstjórnar í fjárhagsáætlun 2016 um stofnun listaskóla í Vesturbyggð.