Fundur haldinn í Aðalstræti 75, 25. september 2018 og hófst hann kl. 18:00
Fundinn sátu
- Aron Ingi Guðmundsson (AIG) varamaður
- Lilja Sigurðardóttir Silva (LS) embættismaður
- Óskar Leifur Arnarson (ÓLA) varamaður
- Ragna Jenný Friðriksdóttir (RJF) aðalmaður
- Ramon Flavià Piera (RFP) aðalmaður
- Svava Gunnardóttir (SG) aðalmaður
Fundargerð ritaði
- Lilja Sigurðardóttir Þjónustufulltrúi
Almenn mál
1. Kosning formanns, varaformanns og ritara
Ragna Jenný Friðriksdóttir setti fundinn sem aldursforseti og bauð fundarmenn velkomna.
Ragna Jenný lagði til að Ramon Flaviá Piera verði formaður ráðsins. Samþykkt samhljóða.
Ramon tók við stjórn fundarins og lagði til að kosning varaformanns og ritara verði frestað til næsta fundar. Samþykkt samhljóða.
Lagt til að fundir nefndarinnar verði haldnir þriðjudag í viku fyrir reglulegan fund bæjarstjórnar, sem haldinn er þriðja miðvikudag hvers mánaðar. Samþykkt samhljóða.
Mál til kynningar
2. Erindisbréf nefnda. Menningar- og ferðamálaráð
4. Áfangastaðaáætlun Vestfjarða
Díana Jóhannsdóttir og Magnea Einarsdóttir frá Vestfjarðastofu kynna Markaðsstofu Vestfjarða, þ.m.t. áfangastaðaáætlun Vestfjarða. Nefndarmenn telja þetta jákvætt og uppbyggilegt verkefni og hlakka til að starfa með Markaðsstofu Vestfjarða á komandi árum.
5. Kynningardagur að hausti
Alda Hrannardóttir kom og lagði fram tillögu að Kynningardegi að hausti sem haldinn verður þann 20.október í þeim tilgangi að kynna fyrir íbúm það félagsstarf sem er í boði á svæðinu, sem og þjónusta sveitarfélagsins í þorpinu.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:30