Fundur haldinn í fundarsal bæjarstjórnar að Aðalstræti 63, Patreksfirði, 31. júlí 2012 og hófst hann kl. 17:00
Fundargerð ritaði
- Friðbjörg Matthíasdóttir Formaður
Fundargerðir til staðfestingar
Almenn mál
2. Málefni Minjasafns Egils Ólafssonar á Hnjóti, sumar 2012
Heiðrún Eva Konráðsdóttir, forstöðukona MEÓ fór yfir starfsemi safnsins það sem af er sumri.
3. Umsögn um drög að matsáætlun fyrir Vestfjarðarveg 60, Gufudalssveit
Bæjarstjóra Vesturbyggðar og oddvita Tálknafjarðarhrepps falið að undirbúa umsögn um drög að tillögu að matsáætlun vegna Vestfjarðavegar 60, Bjarkalundur - Melanes.
4. Tilkynning um afsögn úr Menningarráði Vestfjarða
Lagt fram bréf frá Leifi Ragnari Jónssyni, þar sem hann tilkynnir afsögn sína úr Menningarráði Vestfjarða, frá og með næsta aðalfundi. Samráðsnefnd þakkar Leifi Ragnari Jónssyni fyrir vel unnin störf í Menningarráði fyrir hönd Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps. Tillaga um að Matthías Ágústsson verði aðalmaður í Menningarráði Vestfjarða og Guðrún Leifdóttir til vara. Tillagan samþykkt samhljóða.
5. Umhverfisráðuneytið beiðni um tilnefningu tveggja aðal-og varafulltrúa í Breiðafjarðarnefnd
Samráðsnefnd Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps tilnefnir Þórólf Halldórsson til setu í Breiðafjarðarnefnd fyrir Vestur-Barðastrandasýslu og Arnheiði Jónsdóttur til vara.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00
Finna má matsáætlunina á eftirfarandi slóð
http://www.vegagerdin.is/vefur2.nsf/Files/MAU-Vestfjv-Eidi-Drog-till_mau/$file/MAU-Vestfjv-Eidi-Drög að tillögu að matsáætlun.pdf