Hoppa yfir valmynd

Umhverfis- og loftslagsráð #8

Fundur haldinn í fundarsal, Strandgötu 38, Tálknafirði, 24. mars 2025 og hófst hann kl. 15:00

Nefndarmenn
  • Freyja Ragnarsdóttir Pedersen (FRP) formaður
  • Guðmundur Björn Þórsson (GBÞ) aðalmaður
  • Guðrún A. Finnbogadóttir (GAF) aðalmaður
  • Jenný Lára Magnadóttir (JLM) varamaður
  • Jónas Snæbjörnsson (JS) aðalmaður
  • Kristinn Hilmar Marinósson (KHM) varamaður
Starfsmenn
  • Lilja Magnúsdóttir (LM) ritari
  • Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir (NLS) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
  • Páll Vilhjálmsson (PV) embættismaður

Fundargerð ritaði
  • Lilja Magnúsdóttir ritari

Formaður setti fund og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðið. Svo var ekki og formaður lýsti fundinn lögmætan.

Jón Árnason boðaði forföll og Jenný Lára Magnadóttir fyrsti varamaður sat fundinn í hans stað.

Almenn erindi

1. Bláfáni

Páll Vilhjálmsson, hafnarvörður, kom inn á fund Umhverfis- og loftslagsráðs og fór yfir Bláfánaverkefnið.

Staða á Bláfánaverkefni Vesturbyggðar rædd og farið yfir þá vinnu sem þar hefur verið unnin. Umhverfisstefna hafna Vesturbyggðar frá 2022 rædd og umhverfis- og loftslagsráð hvetur til endurskoðunar á henni m. a. í ljósi sameiningar sveitarfélaganna á síðasta ári.

Páll Vilhjálmsson vék af fundi.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Græn skref

Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kom inn á fundinn og kynnti stöðu Grænna skrefa hjá Vesturbyggð

Nanna Lilja upplýsti að verið sé að vinna að upptöku Græns bókhalds sem sinnt er af hugbúnaðarfyrirtækinu Klöppum, Grænar lausnir, þar sem haldið er utan um sorp, eldsneytisnotkun og rafmagnsnotkun sveitarfélagsins.
Í framhaldinu er eðlilegt að endurskoða upptöku á Grænum skrefum að fullu fyrir sveitarfélagið þegar innleiðing á bókhaldskerfinu er komin í gegn.

Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir vék af fundi.

Málsnúmer3

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


3. Stóri plokkdagurinn 2025

Kynning á Stóra Plokkdeginum 27.04.2025 og fyrirkomulagi framkvæmdar á hverjum stað.

Fyrirkomulag Stóra Plokkdagsins í Vesturbyggð kynnt og hvatt til þátttöku. Verkefnið verður auglýst nánar þegar nær dregur.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


4. Umsagnarbeiðni vegna máls nr. 05912023 í Skipulagsgátt

Umsagnarbeiðni um áform Arnarlax vegna aukningar á umfangi sjókvíaeldis fyrirtækisins í Arnarfirði úr 11.500 tonna hámarkslífmassa í 16.000 tonn ásamt stækkun eldissvæða úr 5,9 km2 í 29 km2.

Jónas Snæbjörnsson lýsti sig vanhæfan til að taka þátt í umræðu um þetta mál og vék af fundi. Kristinn H. Marinósson annar varamaður tók sæti á fundinum í stað Jónasar.

Umhverfis- og loftslagsráð telur að fyrirhugaðar breytingar þurfi að fara fyrir svæðisráð strandsvæðaskipulags, nýtt umhverfismat og aukið reglubundið eftirlit þriðja aðila, þar sem um verulega stækkun á svæðum er að ræða. Einnig þarf að auka tíðni reglulegs eftirlits fyrirtækisins á kvíum til að minnka líkur á slysasleppingum.
Með þessum miklu stækkunum er ekki ljóst hvernig gert er ráð fyrir rými fyrir aðra starfsemi í firðinum.
Farið er fram á stækkun eldissvæða úr 5.9 km² í 29km², eða 391% stækkun. Þetta er gert til að auka sveigjanleika kvíabóla og dreifa úrgangi yfir stærra svæði. Því er óskýrt hvort sú þörf sé vegna neikvæðra áhrifa eldis á núverandi svæði eða hvort stækkunin sé til að dreifa uppsöfnun yfir lengri tíma á stærra svæði. Minnst er á möguleikann að færa kvíar á grynnra, straumharðara svæði sem eykur sjónmengun og dreifir mögulega úrgangi út fyrir eftirlitssvæði.
Umhverfis- og loftslagsráð ítrekar mikilvægi varúðarreglunnar og að vísindalegri nálgun sé beitt við ákvarðanir er varða umhverfismál.

Samþykkt samhljóða.

Kristinn H. Marinósson óskar eftir að bæta svohljóðandi eigin bókun við fundarbókunina:

Það er minn skilningur að tölur um áætlaða aukningu lífmassa um 39% beri ekki saman við áætlaða aukningu úrgangs. Fóðuraukning er sögð vera 33% til 37%. Aukning á losun niturs, fosfórs og kolefnis er sögð vera á bilinu 20-26% á sama tíma sem ég tel vanáætlað.

Farið er fram á stækkun eldissvæða úr 5.9 km² í 29km², eða 391% stækkun. Þetta er gert til að auka sveigjanleika kvíabóla og dreifa úrgangi yfir stærra svæði. Þá finnst mér óskýrt hvort sú þörf sé vegna neikvæðra áhrifa eldis á núverandi svæði og hvort stækkunin sé til að dreifa uppsöfnun yfir lengri tíma á stærra svæði. Minnst er á möguleikann að færa kvíar á grynnra, straumharðara svæði sem eykur sjónmengun og dreifir mögulega úrgangi útfyrir eftirlitssvæði.

Tekið er fram að hætt verði að notast við kopar í nótum, þó fyrirtækið hafi dregið úr upplýsingum um skaðsemi þess. Fyrirtækið tók að nota kopar í nótum áður en löggjöf sem bannaði slíkan búnað var felld úr gildi. Dregur sú hegðun úr trú minni að staðið verði við það loforð.

Ekki er tekið fram hve mörg störf hljótist af þessari aukningu, en þekkt er að rekstrarhagkvæmni aukist með stækkun fiskeldis, sem eykur álag á núverandi starfsfólk. Ekki er hægt að leggja mat á hag samfélagsins útfrá þessum gögnum.

Fyrirtækið hefur reglulega lent í áföllum vegna sjúkdóma, laxalúsar og strokulaxa. Ekki er fullreynt að það hafi lært að meðhöndla ástæður þessa óhappa og aukning kvía og stækkun slitflata getur haft í för með sér aukningu á slíkum brestum.
Hafsvæði Arnarfjarðar er þekkt uppvaxtarsvæði mikilvægra fiskstofna og einstaks rækjustofns. Aukning eldis og áhrif þess á botnlíf og súrefnismettun sjávar mun hafa neikvæð áhrif. Ég sé ekki þörf fyrir að gera tilraunir með þolmörk lífkeðjunnar sem þessi fyrirhugaða stækkun er.

Neikvæð umfjöllun íslenskra fjölmiðla vegna áfalla fiskeldis á Vestfjörðum litar almenningsáhrif. Þau áhrif ná langt út fyrir landsteina eins og sést skýrt í heimildamyndinni Laxaþjóð (Salmon nation). Með auknum umsvifum eldisins má gera ráð fyrir að almenningsálit geti versnað enn frekar og haft neikvæð áhrif á ferðaþjónustu á Vestfjörðum.

Þó ég fagni hugmyndum um að laga kvíastæðin svo þau snúi þvert á straumlínu, til að auka velferð dýranna tel ég að það sé hægt að gera með einfaldri og smærri breytingu á eldissvæðum.

Fyrirhuguð breyting mun hafa neikvæð áhrif á náttúru, umhverfi og ímynd svæðisins í skiptum fyrir takmarkaða hagkvæmni samfélagsins. Það eina sem hægt er að treysta á ef þetta leyfi er samþykkt er að ársfjórðungskýrsla fyrirtækisins mun líta betur út með tilheyrandi hækkun á hlutabréfum eigenda.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:30