Hoppa yfir valmynd

Vestur-Botn #0

Fundur haldinn í Aðalstræti 63, Patreksfirði, 30. september 2015 og hófst hann kl. 17:00

    Fundargerð ritaði
    • Þórir Sveinsson skrifstofustjóri

    Almenn mál

    1. Aðalfundur Vestur-Botns ehf 2015

    Lagður fram ársreikningur Vestur-Botns ehf fyrir 2014 og skýrsla stjórnar.
    Afkoma félagsins var jákvæð um 0,2 millj.kr. Rekstrartekjur voru 0,5 millj.kr. og rekstrarútgjöld 0,3 millj.kr. þar af fjármagnsgjöld 0,1 millj.kr. Nettó eignir í árslok námu 33,8 millj.kr. en engar skuldir.
    Aðalfundur samþykkir samhljóða ársreikninginn.
    Stjórnarkjör. Nýja stjórn Vestur-Botns ehf skipa:
    Aðalstjórn:
    Sigurður Viggósson, formaður.
    Guðný Sigurðardóttir
    Magnús Jónsson
    Til vara:
    Friðbjörg Matthíasdóttir
    Arnheiður Jónsdóttir.
    Stjórnin lét bóka þakkir til fráfarandi formanns Jóns B.G. Jónssonar fyrir farsæl störf í þágu félagsins til margra ára.

    Framkvæmdastjóra falið að ganga frá tilkynningum til Fyrirtækjaskrár og að senda undirritaðan ársreikning til Ríkisskattstjóra.

      Málsnúmer 1509094

      Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


      2. Önnur mál.

      Engin önnur mál.

        Málsnúmer 1509096 3

        Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


        Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00