Patrekshöfn
Patrekshöfn er í norðanverðum Patreksfirði. Þar eru 629 m. af hafnarkanti, þar af er 170 m. hafskipakantur með 7–7,5 m. dýpi. Við Patrekshöfn er trébryggja fyrir meðalstóra fiskibáta og flotbryggja fyrir smábáta.
Almennur opnunartími hafnarinnar er frá 08:00-17:00 á virkum dögum, bakvakt kl. 17:00-22:00 á virkum dögum og kl. 08:00-18:00 um helgar. Þess utan er ekki viðvera eða vakt á höfninni. Símar hafnarinnar eru 450 2365/861 7743
Skipakomur þarf að tilkynna með minnst 24 stunda fyrirvara. Lóðs er í boði fyrir þá sem þess óska.
Talstöðvar eru á kallrás 16 en vinnurás hafnarvarða er 11.
Innsigling til hafnarinnar er í norður, inn í rennu sem er 60 m á breidd miðað við hálf fallið.
Sjávarföll: Stórstreymi 5 metrar, smástreymi 2.5 metrar.
Hafnarþjónusta á Patreksfirði
Bryggjukantar, lega og aðstaða
Bryggjukantar eru 629 m., þar af er hafskipakantur 170 m. með 7-7,5 m. dýpi. Þar leggjast flutningaskip og tankskip ásamt stærri fiskiskipum sem taka olíu þar.
Flotbryggja er fyrir smábáta og trébryggja fyrir meðalstóra fiskibáta.
Skipalægi eru tvö í firðinum, annarsvegar út af Vatneyri og hinsvegar innanvert við Vatneyrina. Þar er dýpi um 18 m.
Akkerislægi A
65-35,45‘N 024-01,00‘V
Akkerislægi B
65-35,45‘N 023-59,70‘V
Pilot station
65°37,20‘N 024°05,30‘V
Vatn og olía
Vatn er afgreitt á höfninni. Til fiskiskipa er það selt samkvæmt lönduðum afla, til annarra skipa samkvæmt mælingu.
Olíudælur fyrir smábáta eru tvær, önnur fiskiskip eru afgreidd með olíu og olíuvörur á hvaða bryggju sem er.
Löndun, ís og útgerðarvörur
Sorp– og skólpmóttaka
Gámavöllur er á hafskipakanti Patrekshafnar. Sorpgámar eru á bryggjum fyrir minniháttar sorp frá fiskiskipum, með annað sorp verður að hafa samband við hafnarverði.
Það er Kubbur sem annast sorphirðu í Vesturbyggð.
Tekið er á móti skólpi frá skipum sé þess óskað, en í þeim tilvikum er kallaður til þjónustuaðili sem hefur yfir að ráða dælubílum til slíkrar þjónustu.
Hafnargjöld
| Lestagjöld | ||
| Önnur skip og bátar | hvert brt | 19,42 kr. |
| Flóabátar, ferjur yfir 80 brt., Brjánslækjarhöfn | hvert brt | 22,93 kr. |
| Bryggjugjöld | ||
| Önnur skip og bátar, hverjir byrjaðir 24 tímar | hvert brt | 10,39 kr. |
| Flóabátur, ferjur yfir 80 brt., Brjánslækjarhöfn, hverjir byrjaðir 24 tímar | hvert brt | 11,47 kr. |
| Gjald fiskiskip og minni bátar, hver mælieining | á mánuði | 120 kr. |
| Lágmarksgjald fyrir fiskiskip og minni báta | á mánuði | 13.456 kr. |
| Bátar minni en 20 brt., lágmark | á mánuði | 8.983 kr. |
| Veittur er afsláttur fyrir frístundabáta í eigu 70 ára og eldri | 25% | |
| Mánaðargjald, bátar með skemmri hafnlegu en 10 daga | 0 | |
| 1-3 dagar í mánuði greiða af mánaðargjaldi | 25% | |
| 4-6 dagar í mánuði greiða af mánaðargjaldi | 50% | |
| 7-10 dagar í mánuði greiða af mánaðargjaldi | 75% | |
| Vörugjöld | ||
| 1.flokkur | á tonn | 531 kr. |
| 2.flokkur | á tonn | 905 kr. |
| 3.flokkur | á tonn | 976 kr. |
| 4.flokkur, aflagjald | verðmæti | 1,60% |
| Afli frystitogara | verðmæti | 0,80% |
| Eldisgjald | verðmæti | 0,70% |
| Saltfiskur, tvöfalt gjald miðað við tvöfalda þyngd | verðmæti - sjá 11.gr. | 0 |
| Gámafiskur, gjald skv. áætluðu heildsöluverði | verðmæti - sjá 11.gr. | 0 |
| Farþegagjald | ||
| Fyrir hvern farþega | á farþega | 179 kr. |
| Hafnsögugjald | ||
| Fyrir hverja mælieiningu | á skipti | 13 kr. |
| Fastagjald | á skipti | 9.671 kr. |
| Hafnsögusjóður | á skipti | 838 kr. |
| Hafnsögubátur með manni | á klst. | 32.573 kr. |
| Festagjöld (móttaka skipa) | ||
| Festagjöld fyrir hvern starfsmann í dagvinnu | á klst | 14.465 kr. |
| Festagjöld fyrir hvern starfsmann í yfirvinnu | á klst | 21.970 kr. |
| Viðlegugjöld | ||
| Bátar undir 20 brt. | á mánuði | 11.701 kr. |
| Bátar yfir 20 brt. | á mánuði | 18.512 kr. |
| Legugjald vegna kvíaleigu við básabryggjur | árgjald | 192.237 kr. |
| Uppsátursgjald | á mánuði | 4.155 kr. |
| Skútur og skemmtibátar | hver byrjaður sólahringur | 3.117 kr. |
| Siglingavernd (ISPS) | ||
| Öryggisgjald fyrir hvert skip | á komu | 68.919 kr. |
| Öryggisgjald fyrir öryggisvörð í dagvinnu | á klst | 8.310 kr. |
| Öryggisgjald fyrir öryggisvörð í yfirvinnu | á klst | 14.901 kr. |
| Sorpgjald | ||
| Bátar að 20 brúttótonnum | á mánuði | 4.013 kr. |
| Bátar 20-50 brúttótonn | á mánuði | 5.015 kr. |
| Skip yfir 50 brúttótonn | á mánuði | 12.895 kr. |
| Úrgangsgjald | ||
| Úrgangsgjald við komu til hafna | hvert brt. | 0,91 kr. |
| Úrgangsgjald við komu til hafna - lágmarksgjald | 8.654 kr. | |
| Úrgangsgjald við komu til hafna - hámarksgjald | 66.566 kr. | |
| Úrgangsgjald lækkað vegna umhverfisstjórnunar | hvert brt. | 0,45 kr. |
| Úrgangsgjald lækkað vegna umhverfisstjórnunar - lágmarksgjald | 5.325 kr. | |
| Úrgangsgjald lækkað vegna umhverfisstjórnunar - hámarksgjald | 33.283 kr. | |
| Förgunargjöld | ||
| Móttökugjald úrgangs | hver rúmmeter | 13.979 kr. |
| Rafmagn | ||
| Rafmagnssala, landrafmagn, 17% álag á taxta OV | á kWh | 17% |
| Rafmagnsmælar lausir | á mánuði | 982 kr. |
| Rafmagnsmælar fastir | á mánuði | 1.963 kr. |
| Rafmagnstengigjald fyrir flot- og trébryggjur | á skipti | 6.154 kr. |
| Vatnssala | ||
| Vatnsgjald á landaðan afla fiskibáta og skipa | á kg | 0,23 kr. |
| Vatnsgjald, önnur skip | á tonn | 617 kr. |
| Vatnsgjald, bátar að 20 brt, á mánaðargjaldi (ekki fiskiskip) | á mánuði | 2.714 kr. |
| Vatnsgjald, 20-50 brt, á mánaðargjaldi (ekki fiskiskip) | á mánuði | 4.886 kr. |
| Vatnsgjald. 50-200 brt, á mánaðargjaldi (ekki fiskiski) | á mánuði | 21.715 kr. |
| Vatn til skemmtiferðaskipa | á tonn | 3,32 USD |
| Vigtargjöld | ||
| Almenn vigtun | á tonn | 248 kr. |
| Lægsta gjald fyrir vigtun | á vigtun | 520 kr. |
| Vigtun ökutækja | á skipti | 2.449 kr. |
| Vigtun utan vinnutíma milli 18:00 og 12:00 | á klst | 10.618 kr. |
| Úrtaksvigtun fyrir löndun úr frystiskipum | á tonn | 229 kr. |
| Löndunar-, skráningar- og kranagjöld | ||
| Löndunar- og skráningargjöld fyrir öll skip | á tonn | 387 kr. |
| Leigugjöld | ||
| Geymslurými á höfn | á mánuði á fermeter | 163 kr. |
| Gjald vegna óleyfilegrar geymslu búnaðar | á sólarhring | 9.428 kr. |
| Leiga á kranalykli | á skipti | 5.531 kr. |
| Húsaleiga | ||
| Herbergi í verbúð með hita og rafmagni | á mánuði per ferm. | 1.105 kr. |
| Vatneyrabúð | ||
| Skrifborð á 1. eða 2. hæð | á mánuði | 70.574 kr. |
| Skrifborð á jarðhæð, framtíðin | á mánuði | 48.859 kr. |
| Skrifborð á jarðhæð, framtíðin | á viku | 16.237 kr. |
| Skrifborð á jarðhæð, framtíðin | á dag | 4.376 kr. |
| Hússjóður | á mánuði | 3.257 kr. |
| Hússjóður | á viku | 1.086 kr. |
| Hússjóður | á dag | 380 kr. |
| Önnur þjónusta | ||
| Útkall utan hefðbundins opnunartíma - þjónusta/vigtun | Útkall (4 klst) | 42.468 kr. |
| Útkall á stórhátíðardögum eða sérstökum frídögum - þjónusta/vigtun | Útkall (4 klst) | 82.872 kr. |
| Skráning í GAFL á afla vegna fyrirtækja með endurvigtunarleyfi | á skipti | 2.751 kr. |
| Skráning í GAFL á afla vegna fyrirtækja með endurvigtunarleyfi | á kg | 0,44 kr. |
| Gjald vegna aðstöðu fyrir olíudælur | á ári | 199.697 kr. |
| Innheimtugjald vegna erlendra millifærslna | pr. millifærslu | 1.299 kr. |
| Virðisaukaskattur 24,0% leggst á öll ofangreind gjöld hafnarsjóðs við útgáfu reikninga. | ||
