Slökkvilið

Slökkvi­liðin í sveit­ar­fé­laginu eru stað­sett Patreks­firði, Tálkna­firði og á Bíldudal. Í þeim starfa 17 slökkvi­liðs­menn á Patreks­firði, 10 á Tálkna­firði og 11 á Bíldudal.

Hlut­verk slökkvi­lið­anna er meðal annars:

  • Vatns­öflun, slökkvistörf innan og utan­húss.
  • Viðbrögð við meng­unar og eitur­efna­slysum.
  • Björgun á fast­klemmdu fólki m.a. úr bílflökum
  • Eldvarn­ar­eft­irlit.
  • Fræðsla

Slökkvi­liðin eru ágæt­lega tækjum búin, þrír bílar á Patreks­firði og einn bíll á Bíldudal og Tálkna­firði. Haustið 2018 bætist ný bifreið við flotann í staðinn fyrir Bedford á Patreks­firði og í janúar 2024 kom nýr bíll á Bíldudal

Slökkvi­liðin vinna saman sem ein heild með slökkvi­liði Tálkna­fjarðar og eru öll þrjú liðin kölluð út þegar um F1 og F2 forgangsút­köll er að ræða.