Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Deild­ar­stjórar við leik­skólann Araklett

Stöður deild­ar­stjóra við leik­skólann Araklett á Patreks­firði eru lausar til umsóknar.


Skrifað: 24. mars 2020

Leikskólinn Araklettur er þriggja deilda leikskóli og þar starfa 17 starfsmenn með allt að 46 börnum. Araklettur er lífsmenntarskóli “deilum gildum okkar til að skapa betri heim.”

Lögð er áhersla á góðan starfsanda sem einkennist af virðingu, umburðarlyndi, gleði og jákvæðu viðmóti. Nánari upplýsingar um leikskólann má finna á vefsíðu skólans

Meginhlutverk deildarstjóra

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
  • Ber ábyrgð á uppeldis- og menntunarstarfinu sem fram fer á deildinni
  • Stjórnun, skipulagning og mat á starfi deildarinnar
  • Ber ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og í samræmi við skólastefnu Vesturbyggðar

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum kostur
  • Frumkvæði
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta
  • Víðsýni, húmor og gleði

Umsóknarfrestur er til og með 30. mars 2020

Sveitarfélagið aðstoðar  við flutning og við  að útvega húsnæði. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Fáist ekki menntaðir leikskólakennarar eða fólk með aðra uppeldismenntun og eða reynslu kemur vel til greina að ráða leiðbeinendur tímabundið í lausar stöður.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Arnheiður Jónsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs Vesturbyggðar og Hallveig Ingimarsdóttir leiksólastjóri.

Umsókn skal berast á vesturbyggd@vesturbyggd.is merkt „Deildarstjóri Arakletti.“

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs

MAS

magnusarnar@vesturbyggd.is/+354 450 2300

Araklettur leikskólastjóri

araklettur@vesturbyggd.is/+354 450 2342