Hvert er orð ársins 2024?
Hvaða orð finnst þér endurspegla árið 2024 í Vesturbyggð?
Skrifað: 16. desember 2024
Íbúum gefst kostur á að senda inn tillögur til hádegis fimmtudaginn 19. desember á hlekknum hér fyrir neðan. Í kjölfarið verður kosið á milli valinna tillagna sem berast.
Orðið má vera af hvaða tagi sem er og getur til dæmis endurspeglað umræðu í bæjarmálum, í félagastarfsemi, í vina- og fjölskylduhópnum eða á vinnustaðnum. Leikurinn er til gamans gerður, tilnefningar eru nafnlausar og íbúar eru eindregið hvattir til að senda inn orð. Tilnefna má fleiri en eitt orð.
Orð ársins 2023 var sameining, en hin orðin sem komu til greina voru framkvæmdir, framtíð, laxalús, sameining og samgöngur.