Hoppa yfir valmynd

Laus störf á Arakletti

Leik­skólinn Araklettur óskar eftir einstak­lingum í störf stuðn­ings­full­trúa og í afleys­ingu sem fyrst.


Skrifað: 6. maí 2020

Starfsauglýsingar

Araklettur er 3 deilda leikskóli á Patreksfirði. Lögð er áhersla á lífsmennt; lifandi gildi í mannlegum samskiptum, leik og læsi. Vakin er athygli á Skólastefnu Vesturbyggðar og jafnréttisáætlun Vesturbyggðar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Stuðningur: Að styðja við börn sem þurfa aðstoð á deild. Starfmann vantar sem fyrst til og með 20. júlí n.k.
  • Afleysing: Leysir af inni á deildum vegna undirbúningsvinnu starfsmanna og vegna tilfallandi veikinda. Ráðning er í boði til eins árs í einu eftir reynslutíma sem er 3 mánuðir, eða eftir samkomulagi

Hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun og/eða reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Stundvísi, snyrtimennska og reglusemi
  • Góð íslenskukunnátta

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Starfshlutfall er 100%. Við hvetjum fólk af öllum kynjum að sækja um.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Hallveig Ingimarsdóttir, leikskólastjóri

Araklettur leikskólastjóri

Bergdís Þrastardóttir araklettur@vesturbyggd.is / 450 2342