Leikskólastjóri á Arakletti á Patreksfirði
Sveitarfélagið Vesturbyggð auglýsir starf leikskólastjóra á leikskólanum Arakletti á Patreksfirði laust til umsóknar. Sveitarfélagið aðstoðar við að finna húsnæði og veitir flutningsstyrk.
Á Arakletti eru 45 börn á þrem deildum. Í starfseminni er lögð áhersla á að börn eru skapandi og kraftmiklir einstaklingar og það sé mikilvægt að skapa þeim áhugahvetjandi umhverfi þar sem leikurinn fær að njóta sín.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun eða önnur sambærileg uppeldismenntun
- Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi. Reynsla af stjórnun skóla er æskileg
- Frumkvæði
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
- Víðsýni, húmor og gleði
Meginhlutverk
- Stýrir og ber ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi leikskóla
- Faglegur leiðtogi og mótar framtíðasýn í samræmi við skólastefnu Vesturbyggðar, aðalnámskrá leikskóla og lög um leikskóla
- Veitir skólanum forstöðu á sviði kennslu og þróunar
- Ber ábyrgð á starfsmannamálum s.s. ráðningum, starfsþróun og vinnutilhögun
- Tekur þátt í samstarfi við aðila skólasamfélagsins í Vesturbyggð
Umsóknarfrestur er til og með 23. júlí 2022
Kostur væri ef umsækjandi gæti hafið störf sem fyrst.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags stjórnenda leikskóla.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Arnheiður Jónsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs Vesturbyggðar.
Umsókn skal berast á vesturbyggd@vesturbyggd.is merkt “Leikskólastjóri Arakletti” Með umsókninni skal fylgja kynningarbréf um störf, menntun og stjórnunarreynslu umsækjanda, hugmyndir um leikskólastarf og hvernig umsækjandi sér starfsemi Arakletts fyrir sér undir sinni stjórn. Einnig skal tilgreina þau verkefni sem umsækjandi hefur unnið að og geta varpað ljósi á færni til að sinna starfi leikskólastjóra.