Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Leik­skóla­stjóri óskast á Patreks­fjörð

Staða leik­skóla­stjóra leik­skólans Arakletts á Patreks­firði er laus til umsóknar.


Skrifað: 30. mars 2020

Starfsauglýsingar

Leikskólinn Araklettur er þriggja deilda leikskóli og þar starfa 17 starfsmenn með allt að 46 börnum. Araklettur er lífsmenntarskóli “deilum gildum okkar til að skapa betri heim.”

Lögð er áhersla á góðan starfsanda sem einkennist af virðingu, umburðarlyndi, gleði og jákvæðu viðmóti. Nánari upplýsingar um leikskólann má finna á vefsíðu skólans.

Meginhlutverk leikskólastjóra:

  • Stýrir og ber ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi leikskóla
  • Faglegur leiðtogi og mótar framtíðarsýn í samræmi við skólastefnu Vesturbyggðar, aðalnámskrá leikskóla og lög um leikskóla
  • Veitir skólanum forstöðu á sviði kennslu og þróunar
  • Ber ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum, starfsþróun og vinnutilhögun
  • Tekur þátt í samstarfi við aðila skólasamfélagsins í Vesturbyggð

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun eða önnur sambærileg uppeldismenntun
  • Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi er æskileg
  • Reynsla af stjórnun skóla er æskileg
  • Frumkvæði
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta
  • Víðsýni, húmor og gleði

Umsóknarfrestur er til og með 30. mars 2020

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags stjórnenda leikskóla.

Sveitarfélagið aðstoðar  við flutning og við  að útvega húsnæði.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Arnheiður Jónsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs Vesturbyggðar.

Umsókn skal berast á vesturbyggd@vesturbyggd.is merkt „Leikskólastjóri Arakletti.“ Með umsókninni skal fylgja kynningarbréf um störf, menntun og stjórnunarreynslu umsækjenda, hugmyndir um leikskólastarf og hvernig umsækjandi sér starfsemi Arakletts fyrir sér undir sinni stjórn. Einnig skal tilgreina þau verkefni sem umsækjandi hefur unnið að og geta varpað ljósi á færni til að sinna starfi leikskólastjóra.

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs

Arnheiður Jónsdóttir arnheidur@vesturbyggd.is / 450 2300